22.1.2014 | 21:29
Fjalla-Eyvindur í Einarshúsi Bolungarvík
Enn og aftur skundar Fjalla-Eyvindur yfir fjöll og fjörðu. Eða kannski fer hann bara göngin, Bolungarvíkurgöngin. Já, næsti viðkomustaður Fjalla-Eyvindar er einmitt Bolungarvík. Leikritið vinsæla verður sýnt í Einarshúsi í Bolungarvík núna á fimmtudag, 23. janúar, og hefst kl.20. Miðaverð er 2.000.- krónur og það er posi á staðnum.
Leikritið um Fjalla-Eyvind hefur vakið mikla lukku frá því það var frumsýnt í lok síðasta árs. Æfingar á leiknum hófust að nýju nú í janúar. Sýningin í Einarshúsi á fimmtudag er 6. sýningin á leiknum. Leikritið Fjalla-Eyvindur fjallar um einn mesta útlaga allra tíma Eyvind Jónsson er nefndur hefur verið Fjalla-Eyvindur. Það er óhætt að segja að kappinn sá hafi verið karl í krapinu því hann var í útlegð í heila fjóra áratugi. Hann fór víða m.a. vestur í Jökulfjörðu þar sem hann hitti lífsförunaut sinn hana Höllu sína. Ástin var slík að hún fylgdi manni sínum í útlegðinni. Þó efnið sé háalvarlegt og dramatískt er hér um léttan gamanleik að ræða en þó skín alvaran yfirleitt best þegar fengið er við grínið. Höfundur og leikari er Elfar Logi Hannesson. Guðmundur Hjaltason samdi tónlistina og Marsibil G. Kristjánsdóttir gerði leikmynd og annaðist leikstjórn.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Áhugavert og það þarf að hald þessari sögu vakandi, því hún er til vitnis um afglöp ráðandi manna sem við erum en þann dag í dag að kljást við þó heldur hafi skánað.
Eyvindur Jónsson sýndi það í öllum sínum athöfnum og með sinni þrautseigju að þar fór snillingur og góðmenni sem leisti öll vanda mál útlagans hægt og hljóðlega en var þó hundeltur af stórgáfuðum yfirvöldum sem alla tíð töldu hann seka þar til hann hafði kokið sinni afplánun, og fyrir hvað var það, já hvað var það sem hann var hundelltur fyri alla sína bestu æfi?
Mitt mat er að þetta hafi verið dýr dómur og til skamar öllum sem þar komu að. Við egum svona vitmenn enn í dag en þeir hafa bara ekki kunnáttu Eyvinds til að lifa af í Íslenskri nátúru án yls, Hann tók hann því með sér og þar varð til önnur hörmunga saga allt í boði yfirvalda.
Hrólfur Þ Hraundal, 23.1.2014 kl. 00:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.