Til umhugsunar

Það var varla risinn nýr dagur á nýju ári þegar álagningarseðlar frá Bolungarvíkurkaupstað duttu inn um bréfalúguna með skilaboðum um 13,6 % hækkun á fasteignaskatti á Einarshúsið auk 25 % hækkunar á lóðaleigu. Þessi hækkun nemur  37.651 krónu á ársgrundvelli sem er dágóður slatti á lítið fyrirtæki sem berst fyrir lífi sínu yfir vetrarmánuðina.  Í kjölfarið kom reikningur fyrir heilbrigðiseftrilitsgjald sem Bolungarvíkurkaupstaður innheimtir sem hljóðaði upp á 45.985,-krónur. Þetta eru stórir útgjaldaliðir fyrir smáan rekstur en samanlagt gerir þessir tveir liðir 458.260,- krónur á þessu ári. Til upplýsinga greiðir Einarhús líka rúmlega 100.000,- krónur í  stefgjöld bara fyrir að hlusta á útvarpið í  viðurkennda fína eldhúsinu sem heilbrigðiseftirlitið tekur út árlega, auk annnarra rekstrarleyfisgjalda sem ekki verða tíunduð hér.

Nú hefði maður haldið að sveitarfélag sem hækkaði gjöld á fyrirtækin sín langt umfram þær hækkanir sem miðað er við í dag til að viðhalda stöðugleika og verðbólgu leggði sig sérstaklega fram um að hlúa að þeim sem reka fyrirtæki  í sveitarfélaginu en svo virðist ekki vera  amk. er ég mjög hugsi yfir þeirri stefnu sem bæjaryfirvöld hafa markað í stuðningi sínum við mitt fyrirtæki .

Áhyggjuefni mitt snýr að veisluþjónustu og þeim tilboðum sem ég hef gert fh. Einarshúss í veislur á vegum kaupstaðarins.  Fyrir nokkru síðan bað fræðslumála-og æskulýðsráð  um tilboð í veitingar og laut ég í lægra haldi fyrir hópi foreldra sem voru að fjármagna utanlandsferð barna sinna en þar var ég svo sannarlega ekki samkeppnisfær að neinu leiti eins og hver maður sér og var mínu tilboði ekki tekið eins og gefur að skilja. Þá reyndar sauð á Vertinum í Víkinni líkt og það gerir örlítið núna en þá sendi ég bæjaryfirvöldum harðort bréf með hótunum um kæru til samkeppnisstofnunar . Fékk ég miður fallegt svar þar sem mér var tjáð að ég ætti bara að halda mig á mottunni því Bolungarvíkurkaupstaður hefði svo oft átt viðskipti við Einarshúsið gegnum tíðina og þar var búið að taka saman tölulegar staðreyndir málinu til stuðnings.  Það má líkja því svari við mann sem ekur yfir á rauðu ljósi og er tekin af lögreglunni en réttlætir brot sitt með því að hafa svo oft ekið yfir á grænu og telur þessvegna eðlilegt  að honum sé sleppt með skrekkinn.

Ég stakk bréfinu fína undir stól og ákvað að láta þetta yfir mig ganga og gerði ekki tilboð í veitingar hjá bænum nokkra hríð. Nú bar svo við að aftur var komin ástæða til að fagna í byggarlaginu og efna átti til veisluhalda á vegum kaupstaðarins.  Vertinn sjálfur gerði tilboð til fræðslumála-og æskulýðsráðs í trakteringarnar fh. Einarhúss og leitaði  til fagaðila og  gúgglaði gjaldskrám á allskyns veislum til að geta verið sanngjörn með verð en samt fengið eitthvað fyrir sinn snúð. Tilboðinu var hafnað vegna þess að annar var lægri og tók ég því eins og hverju öðru hundsbiti í hæl.  Ekki grunaði mig annað en að þeir lögaðilar aðrir í byggðarlaginu sem gefa sig út fyrir veitingaþjónustu hefðu hreppt hnossið og í raun fagnaði ég því vegna þess að allt sem eykur veltu í fyrirtækjum í bænum er okkur íbúunum til góðs og sveitarfélaginu til heilla.

Svo kom í ljós að lægsta tilboðið kom frá öðru byggðarlagi og við því er ekkert að segja því þetta er jú sagt eitt atvinnusvæði þó svo að bæjaryfirvöld í nágrannasveitarfélögum hafi aldrei sóst eftir tilboðum í veislur hjá Einarshúsi hingað til sem halda á í þeirra heimabyggð.

Hafa má í huga að bæjaryfirvöld eru ekki bara einhver Jón út í bæ, bæjaryfirvöld lifa og dafna á því fólki sem býr í sveitarfélaginu, atvinntækifærunum sem þar eru fyrir hendi  og fyrirtækjunum sem þar starfa.  Venjulegur Jón hefur frjálsar hendur með að gera það sem hann vill og mætti kaupa sín veisluföng í sorpeyðingastöðinni þess vegna, þá svo að það vekji  vissulega upp þær spurningar hvort hægt sé að ætlast til þess að heimamenn nýti sér þjónustu í heimabyggð  ef bæjaryfirvöld gera það ekki.

Þetta eru bara svona hugleiðingar Vertsins í Víkinni í dagsins önn og mörgum þykir nú eflaust nóg um. Þetta hvílir bara svo þungt á hjartanu að það verður að ritast niður á blað til umhugsunar fyrir þá sem málið varða. Að sjálfsögðu verður að gæta þess að sanngirni sé í tilboðum en oft er betra að velta hlutunum aðeins fyrir sér og skoða málið frá öllum hliðum svo ekki sé verið að spara aurinn en kasta krónunni.

Næstu mánuðir eru þeir þyngstu í þessum litla veitingarekstri mínum hér  í Bolungarvík en þetta er spurning um að þreyja þorra og góu því það að mun birta upp um síðir og þá hefst fjörið á ný.   Þá munu vorverkin hefjast og vonandi verður nóg að gera í sumar, farþegar skemmtiferðaskipa fara að streyma í Einarshús í fyrsta sinni og þar mun Vertinn segja sögu frumkvöðla á bjagaðri ensku fyrir mannskapinn og reyna að auka með þvi hróður Bolungarvíkur eins og frekast er kostur.

Vegna anna mun Einarshúsið því væntanlega  ekki getað gefið súpu á sjómannadaginn líkt og í fyrra þegar 250 manns þáðu fría fiskisúpu í húsi harma og hamingju. Það var hinn annars ágæti erindreki bæjaryfirvalda sem sá um skipulagninu viðburða í bæjarfélaginu sl. sumar sem lagði það til svo við gætum með stolti boðið upp á frábæra dagskrá á sjómannadagshelgi .  Vertinn í Víkinni gerði það með mikilli ánægju líkt og allir þeir sem lögðu eitthvað á plóginn þessa helgi.

Það er þvi ekki nema von að maður leiði hugann að næsta sjómannadegi. Kannski einhverjir úr nágrannabyggðalögunum geti hlupið undir bagga með ókeypis súpu þetta árið.

Það væri kannski best að fara að leita tilboða.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ansi er þetta ömurlegt ástand ..Gangi þér vel að halda sjó þessa dauðu mánuði. Ég segi öllum túristum sem ég hitti að þeir eigi að fara á vestfirði til að sjá fallega Island.

Ragnheiður , 20.1.2014 kl. 12:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband