Dagurinn í dag.

Mikið er gott að fá tækifæri til að setjast niður og setja hugleiðingar sínar og þankaganga á blað. Það er góð leið fyrir mig til að líta upp úr amstri hversdagsleikans að fá að bulla fyrir ykkur einhverja vitleysu. 

Dagurinn í dag er búinn að vera góður. Allir dagar eru reyndar góðir, bara misgóðir. Stundum gefur á bátinn, þess á milli siglir maður sléttan sjó. Það er þannig hjá okkur öllum og það kemst enginn í gegnum lífið öðruvísi en að lenda í stormi við og við, enda kann maður þá svo vel að meta lognið sem á eftir kemur. Það þýðir þó ekkert að gefast upp þótt róðurinn verði þungur.  Mér finnst ég nánast í stakk búin til að takast á við öll heimsins vandamál eftir ég lagði áfengið á hylluna. Ég ætla mér að hafa það upp í hyllu það sem eftir er.

Það var mikið að gera í Einarhúsinu um helgina og hátt á þriðja hundruð manns litu þar við. Fyrir utan Kútmagann þá tók ég á móti fjórum stórum hópum í súpu.   Það er gleðilegt þegar nóg er að gera en stundum væri heppilegara að álagið væri jafnara en kæmi ekki allt á sama tíma. Svona er reyndar þessi atvinnurekstur og ég sætti mig að sjálfsögðu við það. Aðalfundur sparisjóðsins er á föstudaginn og ég hef umsjón með honum og þar verður gleðin örugglega í samræmi við gróða sjóðsins og ég vona svo sannarlega að hann hafi grætt sem mest. Maður á að gleðjast yfir velgengni þeirra sem eru að standa sig vel. Verra er ef hann er bara að græða á þjónustugjöldunum og vöxtunum sem ég er að borga í mjög ríku mæli.

Spilavistin er kl. 21:00 á föstudagskvöldið og mér heyrist á fólki bæði hér og á Ísafirði að það ætli að mæta og reikna með fullu húsi. Nú er þriðja og síðasta lota í þessari keppi og veitt verða sérstök aðalverðlaun fyrir stigahæstu konur og karla eftir þessi þrjú spilakvöld. Auk þess verða veitt verðlaun karla og kvenna fyrir þetta tiltekna kvöld sem og skammarverðlaun eins og venjan er.  Fólk lifir sig mikið inn í spilamennskuna og það er gaman að fylgjast með.

Ég er búin að vera að föndra við að koma fleiri myndum inn á síðuna og loksins gekk það upp. Ég á eftir að sýna ykkur fleiri myndir af uppákomum í Einarshúsi í framtíðinni. 

Ég keypti vinnufatnað á stelpurnar mínar í hágæða tískuvöruverslun í höfðurborginni en við bardömurnar þurfum að vera nokkuð frambærilega klæddar þegar mikið stendur til. Ég ákvað að kaupa fallega boli og pils og ég taldi ekki veita af að hafa pilsin stutt og við þóttum bara nokkuð flottar í tauinu þegar við trítluðum með guðaveigar milli borða á Kútmagakvöldinu. Þetta passaði á skvísurnar eins og ég hefði látið sauma flíkurnar eftir máli og þær voru hæstánægðar með þessi fatakaup mín.

Bæjarstjórnarfundur er á morgun og mæta Baldur og Sölvi auk mín. Við hittumst núna áðan ásamt Elínu og fórum yfir þau mál sem eru á dagskrá fundarins. Við köllum þetta "meiriháttarfundi" en það hljómar mun betur en " minnihlutafundir".

Menningarráð efndi til fundar meðal bæjarbúa á mánudagskvöld í Einarshúsi um stefnumótun í menningarmálum. Þar var boðið upp á súpu og brauð, fjöldinn allur af fjólki mætti og það var rífandi stemning. Ráðið á eftir að vinna úr þeim tillögum sem þar litu dagsins ljós.

Ég hef lítinn tíma gefið mér til útreiðatúra og þarf að fara að taka mig á í þeim efnum. Ég fer þó alltaf á morgnana í hesthúsin til að gefa og hleypa út. Þeir eru stundum orðnir óþreyjufullir eftir tuggunni sinni því Vertinum finnst gott að sofa á morgnana en þeir láta þó ekki á neinu bera og taka mér fagnandi þegar ég birtist. Ég fór þó í göngutúrinn minn í dag og skellti mér í heita pottinn á eftir. Það hreinsar bæði sál og líkama. Öllum börnum yngri en sextán ára er boðið í sund í tilefni af þrjátíu ára afmæli sundlaugarinnar og ég vona að fólk komi til með að nýta sér það vel á afmælisárinu.

Ætli ég láti þetta ekki duga í dag enda frekar andlaus.

Heyrumst á morgun

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

sæl kæra vinkona, mikið er gaman að geta lesið hugsanir þínar, sem virðast rennna alveg fyrirhafnarlaust frá þér og flæða yfir tölvuskjáinn, ég er að hugsa um matreiðslubækurnar sem þú ánafnaðir mér, hvernig er það , ætlaðu ekki fljótlega að gera aðra tilraun með flugið????

Ég var einmitt að hugsa um að leggja áherslu á fiskrétti hjá mér í sumar, ekki það að ég óski þér annars en góðs, en!!!! Það er nátturlega óþarfi að fara að fjáfesta ef..... nei annars þetta átti nú að vera létt spaug, gaman að fylgjast með ykkur.

kveðja frá Dæli Sigrún 

sigrun (IP-tala skráð) 1.3.2007 kl. 16:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband