1.1.2013 | 19:17
Nýtt ár

Vertinum þykir tilhlýðilegt að óska öllum lesendum sínum gæfuríks komandi árs með þökkum fyrir það liðna. Merkilegt er nokk hve árin eru farin að líða hratt og örugglega en best er að gleðjast yfir því að fá að sanka að sér áramótum í gríð og erg. Það þýðir að títtnefnd er lifandi og það er vel. Á myndinni hér til hliðar má sjá Magna Þór með afa sínum á síðasta degi ársins, annar að upplifa sín fyrstu áramót en hinn man tímanna tvenna.
Hátíðin er búin að vera yndisleg alveg þrátt fyrir válynd veður. Gleðjast má yfir því að rafmagnsleysi raskaði ekki ró gesta okkar sem sóttu Kjallarann í Einarshúsi heim þegar líða tók á nætur og fyrir það má ég trúlega vera hæfilega ánægð. Það var heljarinnar fjör fram á nótt trekk í trekk sem er einkar gott fyrir bisnessinn.
Aðrir voru þó ekki eins heppnir og verð ég að sæma Orkubú Vestfjarða lasti ársins, sem var með allt niðrum sig í öllu rafmagnsleysinu. Skv. fréttum hafði OV ekki undirbúið sig undir það að rafmagn gæti farið af í fárviðrinu, var ekki með olíu til taks á varaaflstöðvar svo hægt væri að halda rafmagninu inni og allt hvað eina. Þeir mættu kannski líka nota eitthvað af gróðanum sínum sem íbúar á köldum svæðum þurfa að borga í okurhúshitun til að ráða sér upplýsingafulltrúa til að koma skilaboðum til fólks sem er svo óheppið að vera án rafmagns svo sólarhringum skipti. Sjúkraskýlið var án rafmagns og það er sko ekkert grín. Þetta er náttúrulega alveg óviðunandi og ekki venjulegu fólki bjóðandi.
Nóg um það, kósýheit og kertaljós sveipuðu hátíðina líka ljóma og gerðu stundina ævintýri líkjast því almyrkvi var í marga klukkutíma sökum rafmagnsleysis. Það má auðvitað þakka OV það svo það er ekki alveg alvont þrátt fyrir allt. Farið var í pottinn í ofankomunni og snjóhörkunni jafnvel um miðjar nætur því sólarhringurinn heima hjá Vertinum er alveg kominn á hvolf þennan dyntinn.
Fjölskyldan borðaði kalkún saman í gærkvöldi, fór saman á brennuna. Björgunarsveitin var með gríðarlega mikla flugeldasýningu líkt og þeir eru vanir og það rak endanlega endahnútinn á árið sem var að renna sitt skeið á enda. Skaupið var fullt af bölvi og ragni en hefur þó vonandi vakið þá sem telja sig geta sagt hvað sem er um náungann á internetinu til umhugsunar um að fara nú að tala fallega um hvert um annað.
Gítarsnillingurinn í fjölskyldunni fór svo í Kjallarann ásamt öllu fríða föruneyti Vertsins til að spila á stóra sviðinu og það gekk vel og Bolvíkingar fjölmenntu að vanda á nýársnótt. Amma Ragna var auðvitað heima að kúra hjá Magna Þór og var því fjarri góðu gamni í gleðskap næturinnar en það kom ekkert að sök í þetta skiptið.
Það sem verra var að Andri og Þórunn komust ekki til að gleðjast með okkur áramótin en það var víst ekki Orkubúinu að kenna heldur veðurguðunum sem kaffylltu allt af snjó með hríðarbyl og skafrenningi. Vertinn er þó búin að læra það að sætta sig við það sem ekki fæst breytt og tók því með jafnaðargeði þrátt fyrir að betra hefði verið að hafa alla hér heima. Það verður bara næst.
Árið 2013 lofar þó góðu, veðrið orðið fallegt og umvefur nú Víkina. Árið ber með sér væntingar og vonir líkt og ætíð. Ég ætla auðvitað í megrun og allt það svona eins og gengur og lofa bót og betrun á öllum sviðum en við sjáum svo bara til hvað setur.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.