Bolludagur.

Bolludagurinn er í dag og hefð er fyrir því að rjómabollur séu borðaðar daginn út og daginn inn. Þessi tími er mjög eftirminnilegur frá mínum uppvaxtarárum því hefð er fyrir því að ungdómurinn klæðist allskyns skrípabúningum og fari að "maska" sem kallað er, en þá ganga krakkarnir í flokkum um bæinn og banka upp á hjá íbúum og sníkja sælgæti.  Það er oft líf og fjör í bænum og gaman að sjá Maska, klædda furðuflíkum flakka um göturnar með hrópum og köllum, syngjandi og trallandi. Oftar en ekki koma börnin svo heim, klifjuð súkkulaði, lakkrís og brjóstsykri sem þau úða í sig af mikilli áfergju sátt og sæl eftir frábæra kvöldstund.  

Saltkjöt og baunir verða svo á matseðlinum á morgun svo ég þarf að muna að leggja baunirnar í bleyti. Það er alltaf jafn gott að smakka þennan herramannsmat einu sinni á ári. 

Tannlæknirinn reif úr mér þessa líka fínu postulínsbrú í dag sem smíðuð var af mikilli kostgæfni fyrir nokkrum árum af Áslaugu vinkonu minni sem er tannsmiður. Nú þarf að ráðast í enn stærri brúarsmíði sem á eftir að gera mig enn huggulegri til munnsins sem leiðir til þess að ég get brosað enn breiðar en ég hef gert til þessa. Ég er búin að vera nánast tannlaus í dag vegna þessa og það er búið að vera alveg skelfilegt. Ég lít út eins og áttræð tannlaus kerlingarherfa sem hefur mátt muna fífil sinn fegri. Þetta stendur þó allt til bóta því á morgun fer ég í allsherjar tannaðgerð sem gerir það að verkum að ég kem til með að líta út eins og manneskja og er tannskurður þar víst ofarlega á listanum yfir þau verk sem vinna þarf. Ég get ekki sagt að mig hlakki til morgundagsins en mig kvíður svosem ekkert fyrir heldur. Þetta er víst ekki það versta sem getur hent mig á lífsleiðinni. Þið hugsið kannski hlýlega til mín um hádegisbilið á morgun.

Bæjarráðsfundur í fyrramálið og þangað mætir Baldur galvaskur í minn stað. Við heyrðumst aðeins á í dag og fórum yfir dagskrána og ræddum heima og geyma.

Ég er semsagt búin að taka það rólega í dag enda get ég ekki látið sjá mig meðal fólks svona illa tennt.

Kem til með að láta í mér heyra á morgun.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ, Ragna, gaman að lesa bloggið þitt. Ég hugsaði í gær með söknuði til Bol, vegna þess að ég elskaði maskadagana alla. Mér fannst svo gaman þegar krakkakrílin voru og koma og syngja fyrir okkur. Sum varla talandi en sungu svo fallega eða töffarnir sem tóku nýjustu dægurlöginn og ekki má nú gleyma öllum pæjunum sem hafa heimsótt okkur í gerfi frægustu söngstjarna heimsins. Bara gaman. Ég er ekki hissa á því að tannlæknirinn sé glaður að fá þig í heimsókn. Þeir fá dollaramerki í augun þegar þeir sjá mig. 

kv. Guðrún Sigurbjörnsd. 

Guðrún Sigurbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 20.2.2007 kl. 11:32

2 identicon

Flott blogg,
Örugglega sæt svona tannlaus :D
-Lilja

Lilja :D:D (IP-tala skráð) 20.2.2007 kl. 19:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband