26.12.2012 | 17:55
Jólahugleiðing
Betlehemstjarnan hefur fundið sér stað yfir byggðinni og lýsir nú upp skammdegið líkt og vera ber á þessum árstíma. Vitringarnir þrír, sem heimkynni eiga í okkur öllum, ljóma af ánægju yfir því að hátíð ljóss og friðar sé runnin upp eitt skiptið þar sem fæðingu frelsarans er fagnað um alla heimsbyggð. Á þessum tímamótum er upplagt að líta aðeins til baka yfir farinn veg og rifja upp það sem stendur upp úr á þessu ári sem senn rennur sitt skeið á enda.
Þegar ömmubarnið mitt fæddist sl. sumar var það lagt í jötu líkt og frelsarinn forðum. Það var vafið í bláan sjúkrahúsklæðnað og fjárhúsið var heimsins besta fæðingastofa á Ísafirði. Þegar ég fékk þennan litla bláa kropp,anga af mínu holdi og blóði í fangið, varð ég enn og aftur hugfanginn af undrum lífsins. Það lýsti sannarlega upp tilveruna að fá að eiga hlutdeild í þessum gullmola enda mikill gleðigjafi og guðsgjöf eftir hremmingar vetrarins. Minningarnar frá erfiðum meðferðum hurfu eins og dögg fyrir sólu þegar ég leit hann fyrst augum og hafa haldið sig í hæfilegri fjarlægð síðan. Magni Þór ömmustrákur dafnar vel eins og hann á kyn til líkt og sjá má á myndinni hér til hliðar þar sem hann er í faðmi foreldra sinna.
Auðvitað stendur það uppúr minningarflóru ársins að verða amma. Margt annað hefur þó á dagana drifið sem gert hefur lífið og tilveruna ævintýri líkast. Eins og allir vita þá er það eitt af sjö undrum veraldar að ég skildi rísa margföld upp úr veikindum mínum og komast aftur nærri svo langt að fara að rífa kjaft í tíma og ótíma. Auðvitað gefur það auga leið að ég er ekki eins kjaftfor og ég var enda sé ég kannski hlutina í öðru ljósi núna en áður.
Elsa mín tók próf með glans sl. vor og er því núna á öðru ári í lögfræðinni. Það er gaman að geta tekið þátt í því ævintýri með henni en hún býr á stúdentagörðum og nýtir tíminn sinn sko allan í lærdóm. Andri minn fer í atvinnuviðtal í útlandinu í byrjun næsta árs sem leitt gæti til þess að hann fái flugmannsstöðu ytra hjá stóru flugfélagi. Það yrði mjög gleðilegt því þá gæti hann unnið draumastarfið sitt en samt hlakka ég ekki til að missa þau til útlanda. Það er þó ekki bæði sleppt og haldið. Þórunn tekur sveinspróf í snyrtifræðinni í byrjun næsta árs en hún getur unnið við snyrtifræðina í hvaða Evrópulandi sem er svo þau verða á grænni grein hvernig sem fer. Lilja mín og Anton eru frábærir foreldrar og standa sig vel. Lilja fer í Menntaskólann á Ísafirði strax á nýju ári og ætlar að taka námið í nefið. Ég, amma Ragna, gæti litla Magna Þórs á meðan.
Ég fór til Kanaríeyja með svo bráðskemmtilegu fólki þegar hausti tók að halla og hafði það svo einstaklega gott. Það ætti að vera skylda fyrir vesalinga eins og mig að fara til heitu landanna við og við yfir vetrartímann. Þetta var eins og að fara á besta heilsuhæli og vonandi gefst mér tækifæri á að fara aftur í svona ferð.
Lífið gengur annars sinn vanagang. Ég fer mánaðarlega í beinþéttilyfjagjöf á Ísafirði og blóðprufur. Þetta virðist allt ganga eins og við er að búast. Bakið er veikt en það hæfir vel kerlingu á mínum aldri. Ég fer í fyrstu ungbarnasprauturnar mínar í mars í Reykjavík og þá hitti ég lækninn. Það mun allt ganga eins og í sögu.
Mamma gamla er heimsótt eins oft og auðið er á Skýlið en á henni sannast vel máltækið að tvisvar verður gamall maður barn. Hún er venjulega afar kát að sjá mig þó hún muni nú ekki alltaf hvað ég heiti þá held ég að hún muni nokk vel hverra manna ég er. Elli kerling er nú ekki alltaf að hlífa sínum nánustu en það er víst bara lífið. Hún gat verið hjá okkur á aðfangadag og þá var meðfylgjandi mynd tekin. Andri var fjarri góðu gamni eins og oft áður á jólum en hann vinnur vaktavinnu og sá nú til þess á Álverið í Straumsvík gegni yfir hátíðarnar. Maður vill auðvitað hafa alla sína nánustu hjá sér á svona stundum en því er ekki alltaf hægt að koma við eins og gengur. Hann og Þórunn stefna á að koma heim um áramótin og vonandi gengur það eftir.
Vertinn klikkaði eitthvað á jólakortunum þessi jólin svo það verður að fylgja þessu bloggi jólakveðja til allra með ósk um gæfuríkt komandi ár. Set með jólamynd sem tekin var af jólasveinum á heimili mínu í aðdragandi jóla og er ekki við hæfi barna en ber með sér hláturkitlandi strauma fyrir þá sem kunna að meta smá jólaklám
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.