21.2.2007 | 10:53
Erfðaskrá
Til stendur fara í flugtúr með syninum ef einhverjar flugvélar verða á lausu og veðrið verður til friðs. Flugvélin sem um ræðir er einshreyfils fjögurra manna Cessna sem á að vera mjög örugg. Ég er nokkuð róleg yfir þessu því ég veit að ég get verið nokkuð viss um að allt sem fer upp kemur alltaf niður aftur en spurningin er bara hvernig. Fram þurfa að fara nákvæmir útreikningar á hæð flugvélarinnar miðað við stefnu því öruggir flugmenn reikna alltaf með að eitthvað smávægilegt geti farið úrskeiðis eins og að það drepist á hreyflinum og þá þarf vélin að vera í þeirri hæð að hún nái landi án vandræða. Ég hef litlar sem engar áhyggjur af flugferðinni sjálfri, meiri áhyggjur hef ég af því að vera ekki búin að ráðstafa helstu eigum mínum til vina og ættinga áður en ég fer og ætla ég nú að fyrirbyggja það að vandalausir fari að ráðskast með það sem ég hef sankað að mér í í gegn um tíðina í eftirfarandi erfðaskrá.
Erfðaskráin er rituð á tölvu af mér sjálfri í engra votta viðurvist. Hún er mest megnis bull og kjaftæði en þó leynist sannleikskorn innan um. Er þetta eingöngu gert til gamans og til að létta mér og ykkur lundina.
Hefst þá lesturinn.
Músarrindill fær hlandkoppinn minn sem er í senn afar handhægur og þægilegur til síns brúks. Hann hefur þann eiginleika að hægt er að spá fyrir um óorðna atburði með því að lesa í hann, það er reyndar vandasamt verk og ekki á færi nema galdramanna að vestan. Hafðu þó varann á því á botni koppsins hefur tekið sér bólfestu Marglitta ein ill og ljót. Hún gæti bitið hvern þann í rassinn sem á kappinn sest. Hlandkoppurinn er úr gegnheilu brotajárni og því eðalgripur og mikið erfðagóss.
Halla Signý fær páfagaukinn Tomma, sem reyndist vera kvenfugl þegar nánar var að gáð. Hann er reyndar dáinn fyrir löngu síðan og hefur verið geymdur í frystikistunni um nokkurt skeið. Ekki hefur fundist tími til að halda honum sómasamlega útför en til stóð að grafa hann við hliðina á leitarhundinum Nökkva sem er jarðaður í Dýrafirði. Reyndar verð ég að segja alveg eins og er að páfagaukurinn er það albesta gæludýr sem ég hef átt og er ég þá að meina eftir að hann dó. Hann var lagður í ryðfría áldós, umvafinn híalíni úr flottasta efni sem um getur og var þar ekkert til sparað. Ég kíkji á hann reglulega og þá helst er ég tek hann upp úr kistunni í misgripum fyrir eitthvað matarkyns og alltaf er sami friðurinn yfir honum blessuðum. Hann skríkir aldrei, hann þarf ekkert að éta, það þarf ekkert að þrífa eftir hann og hann er eins og engill sem er sendur af himnum ofan. Ég veit að Halla á eftir að kunna að meta Tomma.
Gamla testamenntið fær Gógó á Flateyri en hún er að fara til Ítalíu og hún á pantaðan tíma í Vatikaninu hjá Páfanum svo mér þykir við hæfi að hún hafi guðsorð í farteskinu er hún leggur upp í það ferðalag. Bókin er orðin svoldið þvæld enda mikið lesin því hef ég alltaf haft Amen eftir efninu að leiðarljósi í lífinu eins og allir vita. Ég hef þó rifið úr þá kafla er fjallar um upprisu holdsins og freistingar sem hægt er að falla í samhliða því enda geri ég ráð fyrir að það sé aðalmarkmið þessarar ferðar að fræðast um þann drottinn vorn sem getinn er af heilögum anda en ekki hella sér út í saurlifnað. Ég reikna þó alveg fastlega með því að Páfagarður verið uppiskroppa með messuvín eftir þessa heimsókn en ef ég verð sest við hægri hönd Guðs föðurs þá skal ég reyna að kippa í einhverja spotta og sjá til þess að öllu vatni verði breytt í vín á Ítalíu rétt á meðan þessi ágæti hópur dvelur þar úti.
Auði systir ætla ég að eftirláta tanngarðinn sem ég keypti í Búlgaríu í fyrra. Við systurnar höfðum heyrt af svo ódýrum tönnum þarna úti á tilboði svo við fórum með fyrstu vél þarna út og keyptum tvo tanngarða fyrir einn. Þetta er svipað og tilboðin í gömlu kolageymslunni í Kjallaranum, tveir fyrir einn. Við Auður erum reyndar með okkar tennur ennþá svo það er ekki þörf á að nota tanngarðanna strax en alltaf er gott að hafa vaðið fyrir neðan sig. Það er gott að eiga tennur til skiptana ef á þarf að halda. Tanngarðarnir eru reyndar nánast alveg eins og mér sýnist mótið hafa verið tekið úr hrossi eða kind, en það er varla svo naugið og óþarfi að velta sér upp úr þvílíkum smáatriðum.
Gunna Jóns fær hárkollurnar mínar, bæði þessa með hrokkna hárið og eins hina sem er með því slétta. Það fylgir með stór pakkning af hárspennum til að spenna þær niður en eins og margir vita þá er Gunna að flytja til Suðurnesja og þar mun alltaf vera hífandi rok og sagt er að brimlöðrið gangi yfir hið hrjóstuga landslag hrauns og mosa nær daglega. Sannsöglir menn segja mér í trúnaði að þar sé hálfeyðilegt um að litast og ég hef af því áhyggjur að Gunna missi gleði sína yfir því að hafa flutt í burtu svo ég ætla líka að eftirláta henni gleðipillurnar mínar svo hún geti brosað að vild, en hún er að jafnaði mjög brosmild og létt. Það skal þó tekið sérstaklega fram að Gunna er ennþá með sitt eigið hár sem er þykkt og mikið.
Sigrún húsfrú í Dæli fær allar matreiðslubækurnar mínar sem ég er löngu hætt að líta í. Helst ber þó að geta matreiðslubókar með 220 sjávarréttum sem bóndinn gaf mér í jólagjöf fyrir nokkrum árum síðan. Í bókinni eru einnig skátahnútar af öllum gerðum sem geta án efa komið sér afskaplega vel í matargerð ýmiskonar. Það er trúlega upplagt að hnýta eins og einn pelastikk hnút meðan fiskisúpan síður eða rembihnút yfir steikta steinbítnum. Það verður reyndar að viðurkennast að ég hef aldrei opnað þessa bók nema til að hæðast að innihaldi hennar og gera grín að hugmyndaleysi húsbóndans. Ég gaf það glögglega í skin þessi jól að ég vil gimsteina og perlur í jólagjöf en ekki matreiðslubækur með skátahnútum. Mér var efst í huga rammgerður hengingarhnútur þegar ég rók pappírinn utan af þessari jólagjöf. Þarna brýst út vanþakklæti heimsins í öllu sínu veldi. Ég veit þó að Sigrún á ekki eftir að fúlsa við slíkri bók enda notar Villi mikið af hnútum í sveitinni þegar hann þarf að binda óþekka ferðamenn með græna bandinu sem við gáfum honum eitt árið.
Guja skrifar athugasemdir viðstöðulaust á bloggið og getur ekki leynt öfund sinni á kaffistellinu sem ég erfði efti langömmu mína. Amma hafði keypt sér þetta stell eftir að hafa verið kaupakona í Æðey eitt sumarið er hún var ung. Allur afsakstur sumarvinnunnar fór í að fjárfesta í þessu kaffistelli. Guja getur þá hent skörðóttu bollunum sem hún erfði eftir ömmu sína á sínum tima. Ég ætla að láta fylgja með 120 pakkningar af kaffi sem sölumaðurinn og daðrarinn sem ég minntis á í gær seldi mér en ég keypi af honum heilt bretti af kaffipökkum í bland við aðra göruga drykki. Þú gætir hugsanlega haft smá helgistund í hvert sinn sem þú drekkur rjúkandi kaffi úr rósabollunum hennar ömmu og vonandi minnist þú mín sem algjörar bulluskjóðu sem ekkert mark var takandi á.
Það er nokkuð víst að margir hafa orðið útundan í þessari upptalningu minni og eru ugglaust sársvekktir út í mig fyrir að ánafna þeim ekki eitthvað spennandi. Ég man ekki eftir neinu merkilegu til viðbótar til að telja upp í þessu sambandi í bili. Ég ætla að vera í leðurbuxunum svo ég þarf ekki að rástafa þeim neitt sérstaklega.
Allir hinir sem ég elska geta svo rifist um restina.
Verið ekki með sorg og sút, það verður eins með mig og Elvis að ég kem til með að lifa áfram og endalaust og fylgjast með hverju ykkar skrefi.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
ÆÆ takk að þú skulir vera að hugsa til mín. Dauður páfagaugur myndi sóma sér örugglega vel innan um hrossaketið og slátrið í frystikistunni. Hann drullar þó ekki í garðinn á meðan né þarf að ryksuga upp fiðrið um allt hús.
En ef Guja vill ekki bollana þá skal ég hirða þá, hún gæti bara komið til mín í kaffi ef hún vill njóta þeirra.
Hvað með leðurbuxurnar? ég hef augastað á þeim, kannski kemst ekkert í þær en það mætti alla vegna venda þeim og sauma úr þeim bíkini fyrir Ítalíuferðina.
En annars vertu ekkert að fara í háloftin í einhverri ótryggri eins hreifla smáflugvél, okkur hérna fyrir vestan veitir ekkert af að fá þig heila heim. Bolungarvík yrði mikið fátækari annars.
kveðja Halla Signý
Halla Signý (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 16:00
Æ elsku Ragna mín, mikið er ég nú þakklát að þú hugsir til mín og að ég eigi von á testamenntinu:) Það er nú sko ekki slæmt......þá get ég allavegana lesið upp úr því fyrir hana Höllu Signý þarna í Róm:) Það verður örugglega ekki leiðinlegra en þegar við fórum á slóðir Súrsa þarna fyrir austan fjall, um árið!!!! Eða hvað hann nú hét!!! Vonandi verða öngvar svona óvissuferðir í Róm!!!!
UUmmm LEÐURBUXUR!!!! Hefur alltaf verið þvílíkur draumur......ertu viss um að þú ætlir upp í loftið í ÞEIM????? Hafðu það gott í höfuðborginni:)
Spákonan á Kambinum (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 21:29
Mamma greyið tommi minn gamli :(
hann mundi orugglega ekkert fila etta sko :'D
hann er ekki i neitt finu,
bara með barbei föt um siga vafin :'D
bæjjó
p.sflott blog
-Lilja
Skoðaðu myndirnar á
www.blog.central.is/anion
lilja (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 23:14
Æ takk Ragna mín, ég mun bjóða í kaffi líkt og Manga gerði í kvæðinu.
Nei nú er nó ekki meira af svona tali þetta má bara ekki.
Kv. Guja
guja (IP-tala skráð) 22.2.2007 kl. 10:49
HAHAHHA.... þú ert algert listaskáld Frænka... já og takk fyrir síðast. kveðja úr Kópavoginum,, Steinunn litla frænka.
Steina (IP-tala skráð) 23.2.2007 kl. 12:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.