11.8.2012 | 00:36
Langþráð blogg
Heldur betur hefur drifið á daga Vertsins í Víkinni undanfarið og myndi það æra óstöðugan að telja allt það upp. Títtnefnd er hætt að velta sér upp úr veikindunum svona að mestu leyti, gleypir þær pillur sem þarf og innportar beinþéttilyfið endrum og sinnum í gegnum fína stálbrunninn og lífið heldur áfram. Heilsan er nokkuð góð, þrekið að koma en bakið veikt, eins og mér var nánast lofað. Engin merki eru um sjúkdóminn í blóðinu svo hann virðist horfinn og lætur vonandi aldrei á sér kræla meir. Kerling á mínum aldri getur kannski ekki ætlast til að vera eins og unglamb eftir svona veikindatörn og því er í lagi að sætta sig við smábakvesen. Það borgar sig annars ekkert að vera að hugsa of mikið um sjúkdóminn, heldur njóta dagsins í dag eins og frekast er kostur og lifa lífinu lifandi, því ekki gerir maður það eftir að maður er dauður, það eitt er víst.
Ég upplifði af fá að vera viðstödd eitt hið mesta kraftavert lífs míns frá því að kraftaverkabörnin mín fæddust, þegar litli ömmustrákurinn minn fæddist þann 20. júní síðastliðinn. Ég var búin að láta mig dreyma um þessa stund í allan vetur og það var ólýsanlegt að fá hann í fangið í fyrsta sinni og fá að dást að þessum litla dreng sem var svo fullkominn í alla staði. Það er ekki hægt að vera að velta sér upp úr sorg og sút þegar maður á hlutdeild í slíkum gullmola. Ungu foreldrarnir gæta hans svo einstaklega vel en amma gamla fær þó að knúsast með hann að vild, skilar honum þegar hann er farinn að orga og svoleiðis. Ég fæ hann svo mjúkan og hlýjan upp í rúmið mitt á morgnana, ekki snemma sko því ég þarf auðvitað að sofa þar til klukkar er langt gengin í hádegi, og það eru sko sannarlega forréttindi, lukka og lán.
Hann var skírður fyrir stuttu og ekki þýddi að fá neinn almennan prest til verksins því biskupinn yfir Íslandi kom eins og kölluð til að gefa drengnum nafnið Magni Þór. Þá var mikið um dýrðir eins og gefur að skilja. Tilhlýðilegt þótti að smella af nokkrum myndum og svona til glöggvunar fyrir lesendur þá er þetta biskupinn sjálfur sem stendur við hliðina á Vertinum í Víkinni á myndinni hér til hliðar.
Veðrið hér vestra hefur leikið við mig síðan ég kom heim. Mér finnst alltaf vera sól og blíða. Ég reyni að ganga og hjóla þegar ég nenni og hvíli mig þess á milli. Fer reglulega oní Einarshús og gef fyrirskipanir hægri vinstri og derri mig og ríf kjaft en þrátt fyrir það sýna mér allir þolinmæði. Hárið sprettur á toppstykkinu og krullast grásprengt í allar áttir eins og vera ber svo allt er eins og blómstrið eina.
Búið er að vera frekar gestkvæmt í sumar sem er bara gaman. Húsbóndinn hefur verið að smíða pallinn út í garði og tilvalið var því að mynda alla fjölskylduna saman en Andri og Þórunn, Ida skiptineminn okkar og Þorbjörn kærastinn hennar voru heima nýverið ásamt Elsu lögfræðinema sem vinnu myrkrana á milli í Einarshúsi í sumar, Lilju ungamömmu, Antoni og Jóni. Þar má sjá hve Vertinn hefur margfaldað sig bæði í ummáli, rúmmáli, mittismáli og umfangi öllu.
Það er lán skal ég segja ykkur, mikið lán.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
KV Erla.
Erla (IP-tala skráð) 11.8.2012 kl. 18:39
Sæl Ragna!
Dásemdin ein að lesa bloggið þitt, eins og alltaf. Frábært að lesa hvað sumarið hefur verið þér og þínum gott. Er ekki allt í lagi að margfalda sig aðeins? Er þá ekki bara meira að elska fyrir fjölskylduna?
Kv Sóley og co
Sóley Veturliða (IP-tala skráð) 13.8.2012 kl. 08:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.