15.2.2007 | 23:56
Lítið markvert
Fundur var í Menningarráði í dag og þar fór hugur nefndarkvenna á flug er unnið var að stefnumótunarvinnu í menningarmálum í byggðarlaginu. Þessari vinnu þarf að vera lokið fyrir mánaðarmót því hún á að vera innlegg í aðalskipulagsvinnu sem Teiknistofan Eik er að vinna fyrir kaupstaðinn.
Þorrablótið í Holti er annaðkvöld. Ég hræðist örlítið að ég verði látinn sitja frammi á gangi við vegna þeirra ummæla sem ég heft viðhaft um þetta annars ágæta blót. Ég vona að Jón Bjarni nái tímalega heim svo hann geti komið með mér, en hann er á leið til höfuðborgarinnar með lögreglustjóra en ætlar að koma aftur á morgun. Tengdapabbi er enn lasinn og því eru öll tækifæri notuð til að skreppa suður til að heimsækja hann.
Ég fer suður núna á sunnudaginn eins og áður hefur komið fram. Ég hef þéttskrifaða dagskrá í farteskinu eins og ætíð þegar haldið er í höfuðborgina. Trúlega byrja ég á naglaásetningu, en ég hef sérlegan naglasérfræðing í Garðabæ sem ég kynntist ekki alls fyrir löngu og eru hún afskaplega flink að setja gerfineglur á miðaldra húsfreyjur eins og mig. Ég hef ekki getað dýft hendi í kalt vatn síðan ég fékk fyrstu neglurnar hjá henni, sem er gott því ég er ekkert fyrir það að vera með hendurnar alltaf í köldu vatni.
Veðrið var frekar leiðinlegt í dag, sjórinn var úfinn og Ægir frekar úrillur. Gekk frá dreifibréfinu eins og þið sjáið, það verður borið út á morgun. Mér finnst dagskráin metnaðarfull og er rígmontin með mig, en það er nú ekkert nýtt eins og þið vitið.
Nú þykir enginn maður með mönnum nema hafa komið í Einarhús í einhverjar trakteringar. Ég fæ súpuhóp á morgun og það er gott fyrir bisnesinn, ekki kvarta ég.
Ætli ég láti þetta ekki nægja í bili enda heyrið þið það glöggt að ég hef ekkert markvert að segja.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Vonandi jafnarðu þig eftir ónýta matinn í gærkvöldi. Alveg er það ótrúlegt hve margir geta borðað þennan skemmda mat,að mínu mati. Þó svo ég hafi alltaf gaman af því að fara á þorrablót svona til þess að hitta vini og kunningja en ekki til þess að borða á mig gat nema þá einna helst af hangikjötinu og nýrri sviðasultu, sviðum og slátri
Óttarr Makuch, 17.2.2007 kl. 08:40
Það jafnast ekkert á við súra punga, sviðasultu, selsspik og súran hvali í bland við góða vini og skellihlátur. Mmmmmmmm
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 17.2.2007 kl. 13:58
Þú hlýtur að vera GRÍNAST , hvar er Hollustuvernd, það ætti að vera búið að banna þetta á almannafæri líkt og skötuna
Óttarr Makuch, 17.2.2007 kl. 15:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.