5.5.2012 | 22:45
Heima
Blessuð sólin hefur varla sest við sjóndeildarhringinn eftir að ég kom heim. Geislar hennar hafa baðað byggðarlagið og þó svo að örlítið kaldur norðanvindurinn bíti kynnar skiptir það engu máli. Vertinn hefur auðvitað verið á faraldsfæti og spókað sig hér og þar í bænum svona eins og gengur. Ég hef fengið blessun bæjarbúa og faðmlög hingað og þangað og það er nú aldeilis ekki ónýtt. Þeir sem hafa ekki knúsað mig að degi til, gera það í draumi að nóttu og best þótti mér að pabbi gamli skyldi taka svo hraustlega utan um mig eina nóttina að ylurinn frá honum fylgdi mér allan daginn. Segið svo að þeir sem eru horfnir séu ekki með okkur áfram.
Jón er byrjaður að vinna í Einarshúsi og hefur þar næg verkefni og ferðamenn þegar farnir að kíkja við. Ég er svona að reyna að hjálpa til eftir fremsta megni en þrótturinn ekkert orðinn í líkingu við það sem hann var. Mér finnst ég eiginlega fyrst vera veik núna þegar ég er komin í mitt rétta umhverfi og ætla mér að gera allt sem ég gerði áður en er ekki fær um það. Það mun þó koma í fyllingu tímans.
Ég hef svosem ekkert pælt í því að bjóða mig fram til forseta Íslands en þá myndi mitt fyrsta verk vera að færa forsetabústaðinn hingað vestur. Ef 1500 manns koment við þetta blogg mun ég án efa hugsa málið og jafnvel fara fram ef vel liggur á mér. Ég hef aftur á móti fengið stuðning við að taka við prestembættinu hér þegar Agnes prestur yfirgefur svæðið en ég veit ekki hvort það á við mig. Er ansi hrædd um að ræðurnar yrðu oft skrautlegar hjá mér en ég gæti svosem blessað söfnuðinn í bak og fyrir svona endrum og eins. Ég gæti auðvitað sinnt prestembættinu á sunnudögum og forsetaembættinu hina dagana ef því er að skipta en trúlega er ég ekki rétta manneskjan í það. Hver ætti þá að ráðskast með allt og alla oní Einarshúsi mér er bara spurn?
Það er gott að vera komin heim og allt er í himnalagi.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Velkomin heim, kæra vinkona. Farðu nú rólega af stað, njóttu lífsins og mundu að ofgera þér ekki.
Sólrún Geirsdóttir (IP-tala skráð) 5.5.2012 kl. 22:51
Erla (IP-tala skráð) 5.5.2012 kl. 23:04
Mér lýst vel á þig sem forseta ! En þurfum við nokkuð prest þegar við erum komin með biskup ?
Væri ekki fínt að sameina biskupssstofuna og forsetaembættið í Bolungarvík ? Held að þetta myndi hvort tveggja sóma sér vel á Hóli !
Halldór Grétar Einarsson, 13.5.2012 kl. 20:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.