26.4.2012 | 17:57
Gleðiefni
Ekki var jafnvægi komið á blóðflögurnar í dag en samt lítur út fyrir að þetta sé allt í áttina. Ég varð því að fá blóðflögur og beinþéttilyf auk þess þarf ég að fá eina sprautu í belginn í dag til að hvítu blóðkornin fari aftur í réttan farveg. Guðmundur læknir viðurkenndi það fúslega að þetta gengi hægt en örugglega samt og þetta væri ekkert óeðlilegt, margir væru enn lengur að ná sér á strik. Hann býst þó við að ég nái að rísa upp um helgina og vonast til að ég fái að fara heim í næstu viku eða fyrir afmælið mitt þann fyrsta sem er reglulegt gleðiefni.
Ég laug því náttúrulega eins og ég var löng til að ég væri með afmælisfagnað í félagsheimilinu og yrði að vera alkomin heim fyrir þann tíma. Ég yrði að halda upp á 18 ára afmælið mitt einn ganginn enn og bæjarbúar biðu þess með óþreyju að komast í þau veisluhöld. Held hann hafi ekki trúað einu orði enda orðin vanur bullinu í mér og sendir mig ekkert heim fyrr en allt er í orden.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Hahahaha þú ert æði eins og þú ert. Væri ekki amalegt að fá að fara heim í afmælisgjöf.
Rósa Sigr.Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 26.4.2012 kl. 19:18
Hvaða lygi? Ég veit ekki betur en það verði þetta flotta veisluborð í félagsheimilinu á afmælisdaginn þinn eins og ævinlega.
Sólrún Geirsdóttir (IP-tala skráð) 26.4.2012 kl. 23:32
Ragna mín, þú ert einstök manneskja, jákvæð og flott, en ég held að þú sért að verða 19 ekki 18. mig langar að senda þér hlekk, og byð þig að lesa allar sögurnar sem að þar eru : http://www.lupinuseydi.is/sogur-af-seydi/, ég óska þér alls góðs Ragna, þú ert góð fyrirmynd.
Baldur Bjarnason (IP-tala skráð) 30.4.2012 kl. 08:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.