Hitt og þetta

Lífið gengur allt sinn vanagang svosem, ég hressist með  hverjum deginum sem líður og finnst ég stundum fær í flestan sjó. Það er eins og ég sé að hrökkva í gang, farin að drekka kaffi aftur svona pínulítið og hafa lyst á mat og þykja hann góður sem er nú ekkert sjálfsagt þegar maður fer í svona háskammtameðferð.

Það er verið að trappa mig niður með morfínlyfin eins og hvern annan dópista og það gengur sko vel, ég mun losna við þau innan tíðar og þá minnkar í töfluflórunni sem ég þarf að taka dag hvern. Það er þó ekki orðið neitt neitt miðað við hvað ég þurfti að taka á tímabili. Mér fannst allar helv. töflurnar festast í vélindanu og daga þar uppi með tilheyrandi óbragði og öðrum óáran en það er liðin tíð að mestu. Sum lyf held ég auðvitað áfram að taka í einhvern tíma og beinþéttilyfið fæ ég mánaðarlega í framtíðinni á Ísafirði í fína stálbrunninn svo það er ekki undan neinu að kvarta.

Ég fer bráðum að geta gengið í háhæluðu líkt og í denn og allt verður eins og blómstrið eina. Ég er auðvitað nauðasköllótt á toppstykkinu og þar vex ekki stingandi strá ennþá en það kemur. Sköllóttar konur eiga víst að vera í síðum kjólum með stóra eyrnalokka var mér sagt og ég tek það að sjálfsögðu til mín og þarf trúlega að kaupa mér tylft af síðkjólum í framhaldinu.

Ég hitti konu um helgina sem hafði misst hárið í krabbameinsmeðferð og það fór svo illa í hana að hún grét sáran yfir hármissinum. Ég sagði henni að ég gréti aldrei, ég hefði ekki yfir neinu að gráta því allt gengi mér í haginn. Það eru forréttindi að geta litið á svona lífsreynslu sem forréttindi því öllum er ekki gefið að halda svo góðu geðslagi gegnum svona lagað og ég er því heppin, ljónheppin.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband