Vesturferð

Mikið lifandis skelfingar ósköp var gott að heimsækja heimahagana um helgina. Vertinn varð reyndar að fá blóð á föstudaginn var, til að verða eins og manneskja aftur og það tók sinn tíma og því lögðum við seinna af stað en áætlað var í fyrstu. Það kom þó ekki að sök.

Ég hef örugglega fengið blóð úr einhverjum brjálæðing því ég var full af orku heima og hamaðist eins og ég væri alheilbrigð og fór því úr því að vera sjúklingur í það að vera fullfrísk í einum vetfangi og það var svei mér gott.

Ég varð engu að síður að fá blóðflögur í dag og á næst að mæta á fimmtudaginn kemur. Læknirinn minn ætlar ekki að sleppa mér heim fyrr en ég er alveg hætt að þurfa að fá blóðflögur enda er það ekkert vit. Ég bíð því spennt eftir því að komast heim fyrir fullt og fast og held að þá fyrst fari ég að ná mér að einhverju ráði.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið var það yndislegt að sjá þig og knúsa um helgina...hef ekki séð þig síðan í sumar!!! Lítur vel út og þú verður ekki lengi að ná þér þegar þú kemst heim í faðm fjallana og hreina loftsins.

Rósa Sigr.Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 23.4.2012 kl. 20:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband