Sagnakvöld

Heyrði rétt í þessu í Sveini Kristinssyni frá Dröngum en þeir bræður eru væntanlegir hingað vestur um helgina og koma í Kjallarann á laugardagskvöldið. Þá ætlar Sveinn að segja sögur en hann þykir nokkuð snjall sögumaður. Hann hefur þann eiginleika að geta glætt sögurnar lífi og fær áheyrendur til lifa sig inn í atburðarrásina. Það þarf að sjálfsögðu ekki að taka fram að þessar lygasögur eru allar dagsannar.  Guðjón bróðir hans er einnig liðtækur sögumaður og hann kveður einnig rímur af miklum móð í góðra vina hópi. Ég veit að þetta verður æðislega skemmtilegt kvöld en það læðist þó að mér sá grunur að þessi  kvöldstund kunni að dragast á langinn, því þegar þessir piltar komast í ham þá stoppar þá ekkert. Mér heyrðist á Sveini að hugsanlega komi fleiri drungalegir Drangamenn til með að taka til máls og leggja eitthvað inn i umræðuna. Ég sé þá alveg fyrir mér þessa fornu fýra að segja krassandi draugasögur í rökkrinu. Ég vona bara að enginn verði hræddur.

Maturinn heppnaðist mjög vel hjá Lions mönnum en ég var að stússast í því í dag. Oft er þetta meira en full vinna að vesenast þetta i kringum reksturinn í Einarshúsinu. Svo þykist ég ætla að fá mér aðra vinnu með, ég veit nú ekki alveg hvernig það á að ganga upp. Ég þarf þá væntalega að byrja á því að biðja þennan þarna uppi um fleiri stundir í sólarhringinn svo dæmið geti gengið upp. Þannig að ef hann er að lesa bloggið mitt sá hái himnafaðir, þá væri gott ef hann tæki smá tilllit til þessara óska.

Ég ætla að láta þetta vera gott í bili. Ég og Gunnar Ásgeirs ætlum að fá okkur smá göngutúr á eftir til Gunnu Jóns en hún er sérlegur sendiboði friendex fatnaðar tísku fyrirtækis og er ansi lagin við að pranga inn á mig allskyns tuskum og dulum, svo ég mynnist nú ekki á allar druslurnar sem hún fær mig til að kaupa dýrum dómum. Nýr listi með flottum fötum var að koma í hús og það bráðliggur á að vera fyrstur til að panta dragtir og dress fyrir vorið.

Eitt sinn ætlaði ég og fyrrnefndar Gunnur að fara í göngutúr saman og var markmiðið að losa um nokkrar kaloríur. Eftirfarandi skilaboð sendi ég þeim þá í sms.

Eigum við Gunna, að fara að ganga. Galvaskar arka um dali og fjöll. Í seiðandi sjávarnið leitum við fanga, sjálfsagt við hittum þar álfa og tröll. Nú hlusta ég hvorki á rex eða pex. Hittumst við Kjallarann klukkan sex.

Ekki gleyma sagnakvöldinu á laugardagskvöldið.

Heyrumst


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hæhæ það er ekki að spyrja að því, það er alltaf líf í tuskunum þarna fyrir vestan og greinilega nóg að gera  og alltaf jafn gamanan að geta fylgst með  Aumingja Andri liggur hérna við hliðana á mér steinsofandi og hálf druslulegur, ég held að hann sé búin að ná sér í flensuna.. en það batnar vonandi fljótt;-) en ég hlakka til að sjá þig á sunnudaginn. kv Þórunn og Andri

Þórunn og Andri (IP-tala skráð) 15.2.2007 kl. 10:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband