18.4.2012 | 00:19
Dag í senn
Mikið lifandis skelfingar ósköp er dagurinn í dag búinn að vera góður. Vertinn vaknaði eldhress i morgun og er næstum búin að vera á útopnu í allan dag. Þetta er einn besti dagurinn frá háskammtameðferðinni og vonandi verður dagurinn á morgun ekki síðri. Kannski eru blóðflögurnar að komast í eðlilegt horf því ég þurfti ekki slíkar flögur í gær en á að fara aftur á morgun í blóðprufu og þá kemur í ljós hvort ég þarf viðbótarflögur eður ei. Ég geri mér vonir um að komast í helgarleyfi næstkomandi helgi því tímabært þykir að heiðra Vestfirði með nærveru minni eitt augnablik.
Annars þá lenti ég í ótrúlegri uppákomu í einni verslun í bænum en þar var rafmagnsstóll til að koma kramaraumingjum milli hæða. Þar var Vertinn niðurnjörvaður í öryggisbelti og látin fara upp stigann á hraða snigilsins á meðan afgreiðslukonan hélt í mig með meðaumkunarsvip. Ég þóttist nú alveg geta gengið stigann en það var ekki til umræðu annað en að nýta sér þessa stórkostlegu tækni sem til var í búðinni. Ég var óralengi upp stigann og á meðan var Jón búin að skoða allt á efri hæðinni þrisvar sinnum. Til að kóróna allt saman varð ég að fara í stólnum niður aftur og það gekk ekkert betur og ég fór ekkert hraðar og vakti verðskuldaða athygli kúnnanna þegar ég staulaðist úr stólnum og út í bíl. Þetta er auðvitað alveg sprenghlægilegt, svona eftir á.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.