Góðir hlutir gerast víst hægt

Þá er Vertinn búin að eiga sína páska í höfuðborginni hjá tengdó meðan fjölskyldan öll hefur verið fyrir vestan. Ég hef svosem haft það alveg ágætt fyrir utan þetta magnaða þróttleysi sem hefur sest upp annað veifið. Blóðflögur fékk ég á laugardaginn var og aftur í gær en þá kom líka í ljós að viðgerðarteymi hvítu blóðkornanna sem ég kalla " Bleiku fílana" hafði dalað svo ég verð að byrja að sprauta mig aftur í belginn til að reyna að örva framleiðslu þeirra. Eitthvað gengur þetta hægt en vonandi bítandi. Ég kemst hvorki lönd né strönd fyrr en það er komið jafnvægi á blóðbúskapinn en ég vænti þess samt að komast heim kannski í næstu viku. Maður verður alltaf að halda í einhverja von.

Ég er búin að fara í matarboð til Auðar systur um páskana, en þar var litla ömmusnúllan hennar, hún Rakel Harpa sem er þriggja mánaða. Hún stal auðvitað algjörlega senunni. Matarboð var síðan í boði Hrefnu mágkonu á sunnudag svo glöggt má sjá að ég hef verið á faraldsfæti þrátt fyrir allt.

Jón og krakkarnir koma í dag og þá getur hann aftur orðið mín hægri hönd. Mér finnst það algjörlega ómissandi að hafa hann með mér þegar ég fer í rannsóknir og annað á meðan ég er svona slöpp. Ég fór tam. ein á spítalann í gær og rétt marði það milli deilda og varð að hvíla mig á stól sem ég fann á leiðinni. Þar sat ég móð og másandi eins og búrhvalur og varð að láta mér það lynda á meðan ég jafnaði mig.

Svona verður þetta næstu mánuði en það vill til að ég á einhvern slatta af þolinmæði eftir og dass af jákvæðni svo þetta reddast.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bestu batakveðjur til þín Ragna mín, þú hefur nú sýnt og sannað að kjarnakona ertu, og býrð greinilega yfir mikilli stóískri ró og jákvæðni. 

Gróa Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 12.4.2012 kl. 19:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband