4.4.2012 | 08:26
Skart
Fyrsti sólarhringurinn heima var nú hertekin af ógleði og uppköstum. Því varð að fara niður á spítalann í gær til að fá fleiri lyf til að slá á þann óþverra. Slímhúðin í meltingarveginum eyðilagðist og því er það eðlilegt að eitthvað slíkt geri vart við sig meðan þetta grær allt saman. Það gerist í rólegheitunum.
Úthaldið er ekkert og mesta mildi var í gær þegar ég fór með Hrefnu mágkonu og tengdó í kirkjugarðinn til Geirs að þar var ekki opin gröf í nágrenninu því þá hefði ég án efa lagst þar til hinstu hvílu. Ég rétt komst þó í bílinn grá og gugginn og gat jafnað mig þar.
Ég komst í matarboð til Andra og Þórunnar í gærkvöldi sem var frábært en þar var Ida, skiptineminn minn og hennar fjölskylda að borða en þau eru nýkomin að vestan. Ég gat setið frammi smástund en fór svo bara inn í rúm að leggja mig sem er bara fínt.
Í dag fæ ég að vita hvort ég fái að fara heim fyrir páska og það er ekki frítt við það að ég sé smá spennt. Ég hef þó grun um að blóðflögurnar séu á uppleið því ég marðist ekkert eftir sprautuna sem ég sprautaði í belginn á mér í gær sem er góðs viti. Ef blóðflögurnar eru ekki nægjanlegar kemur mar af minnsta tilefni.
Mér skilst á Höllu Signýju vinkonu minni að heimamenn séu farnir að sakna hringlandans í hálsfestunum mínum þegar ég arka um göturnar, því venjulega er ég með glingur á glingur ofan til að skreyta mig í bak og fyrir. Ég er því að búa mig undir að setja á mig skartið á ný svo bergmálið geti ómað fjallanna á milli.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Já Bolvíkingar sakna hringlsins - það er bara sætt. Nú hef ég trú á að þú farir að hjarna aðeins við. Vonandi færðu að fara vestur um páskana, vestfirðir laga orkuna manns.
Ragnheiður , 4.4.2012 kl. 17:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.