Vaggan fyrir vestan

Haldiði ekki bara að Vertinn hafi farið í bæjarleyfi í gær með djásnið á höfðinu og rúntað um höfðaborgina og allt hvað eina. Krakkarnir sóttu mig því Jón Bjarni er farinn vestur og ekið var með mig um miðbæinn og suður í Hafnarfjörðinn þar sem ég gat gengið með sjávarsíðunni og horft á bátana koma að landi eins og heima. Þar sáum við Elsa á bekk og horfðum á ölduna bylgjast á haffletinum og hlustuðum á kveðju hennar berast frá  bárunni úr Boló. Ilmurinn af sjónum var sem besta ilmvatn og kyrrðin var næstum eins og heima og það æsti upp þrána i vögguna mína fyrir vestan í nýja lífið.

Í gærkvöldið mætti ég síðan aftur á minn bás og allt það á spítalanum. Sveipaði um mig hlébarðasloppnum og strigsaði um ganginn eins og ég ætti allt og réði þar lögum og lofum. Það er ekkert lát á merkilegheitunum hjá Vertinum í Víkinni skal ég segja ykkur

Annars þá er þetta eins og spennufall þegar allt þetta er búið. Ég hugsa svo ótalmargt um allt það sem ég ætla að gera í framtíðinni og minnist spennandi hluta sem eru sveipaðir svo miklum ævintýraljóma að ég sef varla á nóttunni þrátt fyrir að hún Imovane hafi farið með mér í háttinn hvert kvöld í þessari síðustu meðferð.

Ég kann sko að meta eitt og annað betur og nú sé ég fullkomlega hversu lánsöm ég er að eiga allt það sem ég á. Svona veikindi fá mann svo sannarlega til að staldra við og hugsa sinn gang og eru í senn upplagt tækifæri til að breyta því sem maður vill breyta til gera lífið betra og skemmtilegra.

Ég er meira að segja farin að dusta rykið af bæninni sem ég bað hvert kvöld þegar ég var barn:

Jesú Kristur ég kalla á þig

komdu að rúmi mínu.

Gakktu hér inn og geymdu mig

Guð í faðmi þínum.

Láttu nú ljósið þitt

loga við rúmið mitt

hafðu þar sess og sæti

signaður Jesú mæti.

Ekki má svo gleyma öllum kveðjunum sem við höfum fengið og stuðningnum við fjölskylduna gegnum þessi veikindi mín en það hefur svo sannarlega veitt okkur styrk og er ómetanlegt. Núna þegar ég er sloppinn í gegnum þessa meðferð verð ég klökk yfir því hve allir hafa stutt vel við bakið á okkur því nú fer tíminn ekki bara í að einblína á að komast í gegnum meðferðina heldur dúkkar allskonar svona lagað upp í huganum.

 Hvítublóðkornin eru 1,50 og Beikufílarnir 0,7 og ég fæ blöðflögur í dag. Verð útskrifuð af spítalanum í dag. Fer í blóðprufu á miðvikudag og þá skýrist hvort ég kemst heim fyrir páska.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín

Dásamlegt að þú hafir komist út..sjórinn í Hafnarfirði er sá sami og hér fyrir vestan:) Gangi þér sem best og vonandi kemstu heim um páskana.

Katrín, 2.4.2012 kl. 13:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband