Laus úr einangrun

Þá er Vertinn loksins laus úr varnareinangruninni og kemst fram innan skamms með súluna mína, hann Hólmgeir. Líðanin miklu betri og búið að skipta um ógleðilyf svo ég er ekki ælandi og spúandi í tíma og ótíma. Þess vegna er ég farin að geta borðað nokkuð skammlaust en er ekki farin að gúffa í mig eins og hross líkt og forðum sem er víst í lagi. Ég fer að losna við hvert lyfið á fætur öðru í framhaldinu en þarf án efa að taka einhver  lyf næstu mánuðina. Ég mun þurfa að dvelja á sjúkrahúsinu fram yfir helgina og þá þarf að sjá til hvort blóðflögurnar verði nægjanlegar því þær er ekki hægt að gefa fyrir vestan og því þarf ég að vera hér syðra þar til allt verður í orden. Ef ég kemst heim fyrir páskana þá er það sannarlega stór plús.

Ida, norski skiptineminn minn, og öll hennar fjölskylda er á leiðinni til landsins í dag og snæða þau kvöldverð í Stífluselinu og rjúka svo í Dæli til næturdvalar. Þau stefna á Bolungarvík sittý á morgun og þá verða Jón Bjarni, Lilja og Anton komin vestur. Andri, Elsa og Þórunn fara svo vestur í næstu viku og ég þegar ég er tilbúin. Allt svona hálf laust í reipunum en trúlega er best fyrir mig að taka bara flugið ef ég fæ þá eitthvað flug en það skýrist allt þegar þar að kemur.

Anton og Elín ráku inn nefið í gær og alltaf jafngaman að sjá hvað karlinn lítur vel út en hann hefur farið í þessa háskammtameðferð. Það er mjög gott að vita að einhverjum sem gengið hefur í gegnum það sama og ég og getur miðlað af reynslu sinni.

Hvítu blóðkornin eru því komin upp í 1,0

Bleikufílarnir (neutrofilarnir) komnir í  0,5

og blessuð sólin er farin að skína


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gangi þér vel mikla baráttukona.

Baldur Bjarnason (IP-tala skráð) 1.4.2012 kl. 17:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband