Búið

Stofnfrumurnar mættu á svæðið rétt fyrir hádegið í gær er sendiboði Blóðbankans koma í öllu sínu veldi með þessa lífgjöf mína í kælikassa. Þetta leit nú út eins og rúsínublóðmörskeppur án mörs og rúsína þegar hún hengdi þetta upp á standinn og lét renna í æðarnar en það gekk vel. Þetta reyndi svoldið á taugarnar því þetta er jú eiginlega lokahnykkurinn á þessari meðferð og heilmikið búið að ganga á til að þetta geti gerst og því titraði ég og skalf og fékk hálfgerðan hroll. Jón hélt í höndina á mér og það veitti mér styrk. Síðan þegar þetta var búið kom hálfgert spennufall í kerlinguna og svo leið dagurinn bara í sæluvímu. 

Síðan kom Elsa í heimsókn og Andri og Þórunn mættu galvösk um kvöldið auk Jóns sem kemur oft á dag og það var nú sérdeilis fínt. 

Um fjögur leitið í gær  losnaði ég við allan vökva og gat farið í sturtu og allt og var því eins og fín manneskja. Ekki þurfti ég að nostra við að því hárið neitt sérstaklega né þurrka það svo sturtan tók fljótt af. Ég mun þó verða með æðalegginn alveg þar til ég er endanlega búin í þessari törn en það verður altílagi.

Í dag fer ég heim og verð heima fram í næstu viku en þá mun ofnæmiskerfið hjá mér hrynja svo stofnfrumurnar getir farið að tikka inn. Þá slappast ég öll og verð veik og þarf að fara á deildina mína í einangrun í einhverja daga. Þá verð ég núllstillt og þróttlaus næstu mánuði og þarf svo sannarlega á fjallaloftinu fyrir vestan að halda til að ná þreki upp á ný. Ég geri mér vonir um að komast heim fyrir páskana.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Baráttukveðjur til þín, Vestfjarðadrottning!

Quinteiras (IP-tala skráð) 16.3.2012 kl. 12:18

2 identicon

ÆÐISLEGT að heyra. Það er nú alveg kominn tími á að sjá þig kella mín. Tu,tu,tu og þú kemst heim um Páskana.

Rósa Sigr.Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 16.3.2012 kl. 21:30

3 Smámynd: Katrín

Gangi þér vel Ragna mín. Gaman að heyra rödd þína í gær:) Knús og kram:)

Katrín, 17.3.2012 kl. 17:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband