Tilraunadýr

Gærdagurinn fór að mestu leiti í að bíða eftir að leggnum yrði komið fyrir. Ekki er hægt að nota fína brunninn í þessar lyfjagjafir því rennslið er ekki nægjanlega mikið til þess að hann dugi einn og sér. Því varð ég að fara upp á skurðstofu einn ganginn enn til að koma fyrir þessum legg sem mun gegna mikilvægu hlutverki í þessari háskammtameðferð.

Það átti nú ekki að vera neitt mál, var mér sagt, og ekkert í líkingu við legginn sem settur var í tvígang í hálsinn á mér þegar stofnfrumunum var safnað. Ég fór því hin rólegasta upp á skurðdeild og bjóst við hinu besta. Leggurinn er settur í æð sem er á bak við bringubeinið og því þurfti að deyfa beinið sjálft auk þess sem ég fékk deyfilyf í æð. Síðan hófust herlegheitin. Læknirinn var ung kona sem greinilega hafði ekki mikla reynslu enda fann hún ekki æðina sem hún leitaði að. Samt sem áður þrjóskaðist hún við og þjösnaðist á mér í langan tíma þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir svæfingalækna um að hún fengi aðstoð. Hún ætlaði sko að gera þetta sjálf og það var ekki fyrr en eftir langa mæðu að hún samþykkti loks að fá " LÆKNI " til að aðstoða sig. Karlmanns-læknir gekk í salinn og það tók hann 10 sekúndur að koma nálinni í æðina.

Vertinum í Víkinni er afar illa við að vera tilraunadýr á skurðdeild svo einhverjir unglæknar geti æft sig og því var ég orðin ævareið þegar upp var staðið. Ég er öll blá og marin á bringunni eftir aðfarirnar og er mest hissa á því að hafa ekki rotað manneskjuna þegar ég hafði tækifæri á því. Svoleiðis gerir maður auðvitað ekki, en þetta nær samt ekki nokkurri átt að fara svona með fólk, sérstaklega vesæla krabbameinssjúklinga.

Ég er nú alveg að jafna mig á þessu því það er ekki annað hægt þegar maður liggur á deild 11G á Landspítalanum því hér er stjanað við mig á alla lund. Stelpurnar eru alveg yndislegar og ég hef heyrt að þetta sé langbesta deildin á spítalanum til að liggja á svo hér væsir ekki um mig. Ég kvartaði þó rosalega undan meðferðinni þegar nokkrir unglæknar komu á stofugang og sagði það ekki ná nokkurri átt að láta svona óreynda krakka og það konur í þokkabót fara svona að ráði sínu. Ég fékk litla meðaumkun á þeim bænum. 

Ég er búin að vera með næringu í æð frá átta í morgun og rótsterka gleðiglundrið rann hratt og örugglega um æðar mínar í hálftíma rétt  fyrir hádegið. Mér hefur samt liðið þokkalega í dag og þrátt fyrir að hafa þurft að fara fimmtíu sinnum á klósettið út af þvagsýrulyfinu, hef ég getað horft að draugamynd Stebba kóngs ( Stefan Kings ) í tölvunni. Einnig hef ég prjónað smá og horft að sjónvarpið til að stytta mér stundir. Stofnfrumurnar verða svo setta í kellu í fyrramálið og ef allt gengur fínt, fer ég heim á föstudag.

Töff og kúl

Ég skrapp aðeins heim í gærkvöld og þar höfðu Andri, Elsa og Þórunn af því hina bestu skemmtun að raka hárlufsurnar af toppstykkinu og svei mér þá ef ég er ekki bara kúl og töff.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú stendur þig rosalega vel í þessu öllu saman Ragna mín ;* Bestu kveðjur

Kolbrún Björg jónsdóttir (IP-tala skráð) 15.3.2012 kl. 00:21

2 identicon

Þetta fer þér nú bara helv....................vel Ragna mín . Töff og kúl eins og þú segir :)

Gangi þér vel.

Kv. frá Ísafirði .

Alma Björk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 15.3.2012 kl. 16:50

3 identicon

Noh, þú er bara alger skutla! Ætli þetta verði ekki bara nýjasta trendið! Bestu kveðjur!

Sóley Vet (IP-tala skráð) 19.3.2012 kl. 08:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband