13.3.2012 | 12:40
Stóra stundin
Þá fer nú stóra stundin að renna upp, sjálf háskammtameðferðin. Ég er komin á spítalann og mun dvelja hér fram á föstudag. Á þeim tíma ætla þeir á núllstilla mig og eyða öllum óþarfa frumum úr skrokknum í bland við annað sem er svosem bráðnauðsynlegt. Síðan fæ ég stofnfrumurnar mínar í framhaldinu og þá fara hlutirnir heldur betur að gerast. Þetta er eins og að fara með tölvu í yfirhalningu. Þar þarf að eyða öllum gömlum gögnum út og setja upp ný forrit í staðinn. Síðan er tölvan endurræst og ýtt á enter og þá er hún eins og ný. Eins verður það með mig, þegar ýtt verður á enter liggur leiðin bara upp á við. Þetta verður þó örugglega töff tími sem framundan er og því afar gott að vera í góðu jafnvægi.
Ég hélt þó að ég væri orðin það góð í bakinu að tími væri til kominn til að minnka eitthvað verkjalyfin en það gekk ekki upp. Ég var orðin ómöguleg í gær af verkjum og því varð ég að játa mig sigraða og fara á lyfin aftur. Þetta tekur sinn tíma að lagast það eitt er víst og ekkert annað að gera en að sætta sig við það.
Ég er byrjuð á skírnarkjól fyrir komandi barnabörn og vonandi get ég gripið í það annað slagið. Það er um að gera að hafa eitthvað milli handanna þegar svona stendur á og það er einmitt svo róandi að prjóna.
Í gær var farið á röltið í Kringlunni og Smáralindinni svona rétt aðeins til að lyfta sér upp eftir blóðprufuna. Þar var auðvitað títtnefnd í háhæluðu og strigsaði um allt eins og hvert annað merkikerti. Fæturnir voru auðvitað algjörlega búnir eftir labbið, því það er ansi langt síðan ég gekk á öðru en sléttbotna. Maður verður auðvitað að passa sig á að glata ekki kúlinu á þessum síðustu og verstu tímum og því þótti þetta nauðsynlegt rétt fyrir komandi átök.
Hárið orðið ansi rytjulegt og eiginlega lít ég út eins og argintæta. Ætli það fái ekki að fjúka bráðum en það er allt í góðu því ég kann mörg ráð við því eins og sjá má á myndinni þar sem við mæðgurnar erum saman komnar. Hárprýði Vertsins er þar með ólíkindum eins og vera ber.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
fín mynd af ykkur sætu mæðgum!
steina (IP-tala skráð) 13.3.2012 kl. 12:56
Þið eruð allar fallegar á myndinni og hárið er fínt og ef það fær að fjúka þá verður það örugglega rennislett það nýja.(mágkona mín fekk dökkt í staðin fyrir sitt ljósa) Góðar og hlýjar hugsanir sendar frá okkur.
Gunna Gumma Hafsa (IP-tala skráð) 13.3.2012 kl. 13:54
Bestu kveðjur til ykkar allra Ragna mín og gangi þér vel í því sem framundan er. Ég dáist svo að lífsviðhorfinu þínu og það hvernig þú lítur á það sem þú ert að glíma við. Margir gætu tekið þig til fyrirmyndar! Kveðja frá Ísó!
Sóley Veturliða (IP-tala skráð) 13.3.2012 kl. 16:59
Þú ert glæsileg með nýja höfuðfatið og þið mægður flottar. Gangi þér súper vel á lokasprettinum og þú tæklar þetta eins og allt annað. Kv. og kærleiksknús.
Rósa Sigr.Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 13.3.2012 kl. 19:45
Gangi þér vel
Ingunn Sveinsdóttir (IP-tala skráð) 13.3.2012 kl. 20:54
Gangi þér vel. Bestu kveðjur Dísa og Pétur.
Þórdís Sigurðard. (IP-tala skráð) 14.3.2012 kl. 15:34
Eg hef verið á landspítala í 30 ár meðal annara ættingja með barnabarni.
hann neitar nú orðið að vera tilraunadyr enda langkvalinn.
ekki láta nota þig til .
þess- nóg að vera veik.
Bestu kveðjur frá 13e
Erla Magna Alexandersdóttir, 14.3.2012 kl. 22:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.