Viðtalið fína

Trúlega halda margir núna að Vertinn sé haldinn athyglissýki af einhverju tagi því enn eitt drottningarviðtalið hefur nú birts á netmiðlinum bb.is. Það er auðvitað alls ekki svo enda hægversk og hógvær með afbrigðum eins og allir vita sem til mín þekkja. Ekki er nema ár síðan ég var aðalskvísa sama blaðs en þá var reyndar verið að ræða reksturinn í Einarshúsi en nú eru það veikindin og bloggið sem eru aðalumræðuefnin svo það er allt annað mál. Það vantar trúlega eitthvað núna til að selja blaðið og því ekki að tala við viðlíka vitleysing og mig með reglulegu millibili.

Annar þá er ég mjög hress og kenni hvergi krankleika ef svo má segja. Tannverkurinn á undanhaldi enda eins gott, ég er farin að minnka verkjalyfin örlítið og það virðist ætla að sleppa. Samt virðist bakið vera ósköp veikt því ég þreytist við minnstu áreynslu. Ég stalst til að þvo smá ullarvesti og ullarkraga í baðkarinu í gær sem ég nýverið prjónaði og tengdamamma ætlaði sko ekki að líða það að sjúklingur eins og ég væri að standa í svona löguðu. Hún heimtaði að fá að gera þetta sjálf og því varð ég að læsa hana úti til að fá frið. Ég varð auðvitað dauðþreytt í bakinu en ég myndi aldrei viðurkenna það fyrir henni.

Í dag á að leggja land undir fót og skreppa í Dæli til Sigrúnar og Villa og vera það í nótt svona rétt til að lyfta sér upp eitt augnablik. Ekki vinnst tími til að fara heim núna því ég á að mæta í blóðprufu á mánudagsmorgunn. Í framhaldinu af því hefst stóra stofnfrumumeðferðin svo það styttist óðum í það að þessu stóra verkefni mínu ljúki í bili.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gangi þér vel Ragna mín og bestu óskir um góðan bata.

Eygló Harðardóttir (IP-tala skráð) 8.3.2012 kl. 21:32

2 Smámynd: Katrín

Ég held að það sé nú í lagi að svona skemmtilega kona sé athyglissjúk...það eru nú einhverjir aðrir sem mættu hverfa af sjánum og blöðum en vertinn! N

Katrín, 10.3.2012 kl. 01:40

3 Smámynd: Katrín

Ég held að það sé nú í lagi að svona skemmtilega kona sé athyglissjúk...það eru nú einhverjir aðrir sem mættu hverfa af sjánum og blöðum en vertinn! Njóttu dvalarinnar í Dæli og gangi þér sem allra best með framhaldið.

Katrín, 10.3.2012 kl. 01:41

4 identicon

Sæl Ragna mín.

Þið Jón eigið bara inni vöfflukaffið þegar þið komið heim.Gangi þér allt í haginn . 

Bið að heilsa :)

Laufey Þóra Friðriksdóttir (IP-tala skráð) 11.3.2012 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband