Einn sextíu og sex

Vertinn vaknaði í tíma til að fara til prófessors í tannlækningum í Tanngarðinum svokallaða til að láta kíkja á skoltinn. Eitthvað þarf að hreinsa og taka til áður en stofnfrumuaðgerðin sjálf fer fram svo ekki myndist sýkingar í slímhúðinni. Ég þarf víst að fara til tannlæknis í þessu kærkomna fríi til að láta laga eitt og annað. Ætli ég komist nokkuð vestur vegna þessa.

Lungnaprófið tókst með ágætum svo lungun virðast í góðu standi ef miðað er við hæð og aldur. Það kom þó verulega á óvart að ég skyldi vera að dragast saman því alltíeinu núna virðist ég hafa minnkað um heila tvo sentímetra á stuttum tíma. Ég þrætti við vesalings stúlkuna og heimtaði að ég yrði mæld upp á nýtt en það var ekki um villst, ég var orðin einn sextíu og sex ( sko á hæð) eða bara hálfgerður dvergur miðað við það sem ég var þegar ég var stærst í bekknum á sínum tíma en þá var ég 168,5 cm. Bráðum verður hægt að mæla mig í fermetrum ef fram fer sem horfir. Kannski hafa beinin ekki vaxið ennþá eftir beinþynninguna svo ég geri mér vonir um að ég spretti kannski eitthvað. Ég verð þá bara að sætta mig við að vera eins og lítil kúla í laginu. Ég er þó nokkuð ánægð með aukakílóin núna því ég held ég þurfi á þeim á halda í átökunum stóru.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku hjartans vinkona þú ert svo dugleg og þú ert alveg frammúr-skarandi góður penni þú kemur svo skemtilega að orðum haltu áfram snillingur kærleikskveðjur 'Asta.

Ásta Kristinsdóttir (IP-tala skráð) 29.2.2012 kl. 23:33

2 identicon

þeir eru alveg kostulegir þegar þeir mæla mann þarna á lungnadeildinni.. ég fer þangað einu sinni á ári og hef hækkað um heilan sentimeter í hvert sinn sko... hef alltaf haldið því fram að ég sé 165. svo allt íeinu í fyrra varð ég 166, og nú um daginn var ég 167,,, og var á sokkaleistunum sko í öll skiptin. og varla eru sokkarnir margir sentimetrar að þykkt.. ekki vissi ég að maður stækkaði alveg uppundir fertugt...

verra þætti mér að minnka, þú verður að fá þér hærri hæla kæra frækna!.

Steina (IP-tala skráð) 6.3.2012 kl. 15:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband