27.2.2012 | 22:52
7,3 milljónir
Í dag söfnuðust 7.3 milljónir stofnfruma og telst það nægjanlegt til viðbótar því sem safnaðist þarna um daginn. Það gekk reyndar hálf brösuglega að koma leggnum fyrir í hálsinum því hann leitaði út í handlegginn en ekki í áttina að hjartanu. Því þurfti allskyns tilfæringar á skurðarborðinu svo hægt væri að koma ómtæki fyrir svo hægt væri að þræða legginn á réttan stað. Það hófst þó allt á endanum og ég var komin í skilvinduna uppúr kl. 10 í morgun. Þar las ég örlítið yfir vesalings hjúkrunarfræðingnum frá Blóðbankanum sem kominn var til að aðstoða mig og heimtaði að fá að vita nákvæmlega hver hefði klikkað síðast á talningunni, ég ætlaði nefnilega að heimsækja hann sko og lesa honum pistilinn. Það varð eitthvað fátt um svör.
Fimmtán lítrum var dælt úr kerlingunni og það gekk bara nokkuð vel. Ég gat sofið og dormað mestan partinn en einnig greip ég í prjónana eitt augnablik.
Þegar söfnun var að ljúka kom í ljós að það hafði blætt inn á hálsinn og myndast gúlpur og þess vegna varð ég að fá blóðflögur til að auka storknun í blóðinu og fljótlega fór hálsinn að líta betur út. Ég fór svo heim um fjögurleitið og hef verið meira og minna í rúminu síðan. Líðanin svona og svona.
Leggurinn verður tekinn í fyrramálið og málið er dautt.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Æi, elsku kerlingin mín. Það er ekkert lítið sem á þig er lagt. En nú hlýtur leiðin að fara að liggja upp á við. Það vona ég svo innilega. Bestu kveðjur.
Sólrún Geirsdóttir (IP-tala skráð) 28.2.2012 kl. 08:12
Vona að allt hafi tekist vel núna. Bestu kveðjur til þín og þinna! Búin að hugsa mikið til þín!
Sóley Vet (IP-tala skráð) 28.2.2012 kl. 20:15
7,3 milljónir er nú slatti og ætti að vera erfiðara að týna þeim öllum en hinum:) Vona að í þetta sinn hafist þetta með réttum hætti. Knús og kram :)
Katrín, 28.2.2012 kl. 21:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.