Vanagangur

Lífið gengur sinn vanagang þó ég sé ekki eins og landafjandinn út um allar trissur. Á mánudagsmorgun verður leggurinn settur í aftur og þá byrjar vonandi söfnun á ný. Ég reikna með að það taki tvo til þrjá daga því ekki ætla þeir að láta þetta mistakast enn á ný. Til allrar lukku hef ég ekki fengið flensu í þessu ferli og ætti því að vera betur undir þetta búin núna.

Eftir söfnunina fær ég frí í þrjá vikur til að ná upp smá þreki á ný fyrir stofnfrumuaðgerðina og hver veit nema við skreppum heim í einhverja daga. Einhverjar rannsóknir og tannlæknaferðir verða þó á þessum tíma svo tímasetning er ekki alveg komin. 

Herb 4Mikið er að gera varðandi Einarshús í sumar og nú virðast bara allir vilja hafa þar viðdvöl með sína gesti. Ferðaskrifstofur um allt land eru að falast eftir gistingu og veitingum og það er alveg frábært og alveg í takt við það sem við lögðum upp með þegar við tókum gistinguna í gegn með þeim hætti sem við gerðum. Þjóðverjar verða þó fyrirferðamiklir í maí og júní og eru nær allar vikur uppteknar í húsinu þann tíma. Öll rúm eru glæný og einkar þægileg og allur aðbúnaður eins góður og best verður á kosið. Ég vil þó minna á að þeir sem ætla að heimsækja bæinn í sumar geta auðvitað átt möguleika á gistiplássi í þessu frábæra húsi því það gæti verið laust herbergi. Síminn er 456-7901 eða senda má fyrirspurn á ragna@einarshusid.is  og því verður svarað um hæl.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott að heyra að allt gengur vel - bæði meðferðin og buisnesinn. Bestu kveðjur.

Sólrún Geirsdóttir (IP-tala skráð) 25.2.2012 kl. 17:19

2 identicon

  Við mælun sko með gistingu og mat á þessum frábæra stað. Gangi þér vel Ragna mín.

Erla (IP-tala skráð) 25.2.2012 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband