Lítið

Það er frá afskaplega litlu að segja núna enda hef ég verið við rúmið undanfarið. Fór reyndar á bráðamóttökuna í gærkvöldi og dvaldi þar í blóðprufum, þvagprufum og generalprufum svona rétt til að fylgjast með ástandinu langt fram á kvöld. Ég var góð í hvítum en samt leystu þeir mig út með sýklalyfjum svona rétt upp á grín, kannski aðallega til að losna við mig eða þannig. Ég svitna eins og skaðbrennt svín svona annað slagið en það fylgir víst lyfjatökunni. Ég er ekki komin á breytingaraldurinn ef einhverjum hefur dottið það í hug enda er ég bráðung og á langt í það.

Ég gat þó til allrar guðs lukku etið á mig gat af saltkjöti og bollum og það er nú fyrir mestu að geta borða þegar svona stendur á því gott er að hafa aukaforða.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín

hehehe..ætli saltkjötið hafi ekki haft eittthvað að segja varðandi svitann:) Gott að heyra með þau hvítu og vonandi helst það þannig. Knús inn í nóttina og gangi þér sem allra best :)

Katrín, 22.2.2012 kl. 21:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband