Frekar slöpp

Eitthvað er Vertinn búin að vera þreytt þessa dagana. Ég ligg nú bara mest megnis upp í rúmi og dorma yfir sjónvarpinu. Þetta er einhver vesældómur svona eins og gengur. Ég svitna eins svín og er bara hálfgerður kramaraumingi. Ég hef á tilfinningunni að hvítu blóðkornin séu frekar lág þennan dintinn og þessvegna sé ég svona mikill vesalingur en það lagast vonandi á morgun þegar ég fæ fyrstu sprautuna í belginn en eins og áður fæ ég sprautur kvölds og morgna hér heima til að losa mergfrumurnar út í blóðið.

Ég gat þó farið með ungu foreldrunum í þrívíddarsónar í dag og þar lék litli ömmustrákurinn allskyns kúnstir fyrir okkur og það var svo gaman.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Leitt að heyra. Vonandi hressistu sem fyrst. Frábær myndin af ömmustráknum :) Hafðu það sem allra best, kæra vinkona.

Sólrún Geirsdóttir (IP-tala skráð) 20.2.2012 kl. 21:41

2 Smámynd: Ragnheiður

Farðu vel með þig og þú hressist vonandi við lyfin í dag

Ragnheiður , 21.2.2012 kl. 05:08

3 Smámynd: Katrín

í þessari vegferð skiptast á góðir dagar og slæmir. Og stundum merkja slæmu dagarnir að eitthvað gott er að gerast. Gangi þér vel í mergfrumusprautunum og ég vona að nú hafi menn talið rétt fram til skatts:) Hvíldu þíg ljúfan, það er nauðsyn fyrir átök morgundagsins.

Katrín, 21.2.2012 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband