17.2.2012 | 20:25
Gleðiglundur
Vertinn hélt suður á bóginn í gær með viðkomu á Skaganum hjá Lilju ljósbera og Antoni en þar var farið út að borða í Gamla Kaupfélaginu svona rétt til að lyfta sér upp og það var alveg ljómandi. Litli ömmudrengurinn dafnar vel í kúlunni og ég heyrði svo greinilega að hann kallaði " AMMA" þegar ég lagði eyrað upp við maga Lilju, svo hann er strax byrjaður að læra að tala. Þetta verður mikið gáfubarn eins og kyn hans stendur til langt aftur í ættir.
Við vorum þó komin tímanlega í Stífluselið því ég átti að mæta upp úr átta í morgun í blóðprufu á Lansann og síðan í gleðiglundrið. Það var fjórfaldur skammtur í þetta sinnið með öllu tilheyrandi, steratöflur, ógleðitöflur, beinþéttiefni og ég veit ekki hvað og hvað fékk að fljóta með svo ég er eiginlega uppfull af allskonar eitri sem er til þess fallið að hjálpa mér að ná heilsu á ný. Ég er nú byrja ég upp á nýtt að undirbúa mig undir stofnfrumusöfnun og lyfjagjöfin í dag fór bara þokkalega vel í mig. Ég gat dormað eitt augnablik og prjónaði þess á milli. Harpa hjúkrunarfræðingur sá um mig eins hvítvoðung og sá til þess að allt færi nú rétt fram.
Ég er búin að vera ágæt í dag, aðeins illt í hausnum og fótunum og í svitakófi annað slagið en hvað er það á milli vina. Hvítu blóðkornin eru frekar í lægri kantinum svo ég þarf að fara frekar varlega svo ég taki ekki einhverja flensu því það vil ég alls ekki núna.
Ég er þó að spá í að fara bara í mál við Blóðbankann því nú er í tísku að fara í mál við hina og þessa banka en þeir snuðuðu mig um 3.5 milljónir stofnfruma í síðustu talningu eins og ég hef sagt frá áður. Ég á því margar milljónir inni hjá þeim sem bera enga vexti né vaxtavexti, en þessar milljónir voru víst bara eintóm froða og voru aldrei til. Hljómar nokkuð kunnuglega ekki satt? Ég efast þó um að það beri nokkurn árangur að lögsækja Blóðbankann enda nenni ég ekki að standa í því enda ætla ég að bíta á jaxlinn og klára þetta mál í eitt skiptið fyrir öll.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Er það ekki sem bankarnir treysta á, að fólk hafi ekki nennu til að sækja á þá? Það mætti segja mér það. Það er stóralvarlegt mál að tapa 3,5 milljónum stofnfruma og þó þú farir ekki í mál við blóðbankann ætti að setja rannsóknarnefnd í málið af hálfu Landlæknis. Á meðan heldur þú auðvitað áfram að þinni alkunnu seiglu :) Kveðjur suður yfir heiðar:)
Katrín, 17.2.2012 kl. 21:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.