14.2.2012 | 23:48
Útkysst
Vertinn hefur verið heima undanfarna daga í afskaplega góðu yfirlæti og hefur haft það alveg glimrandi gott. Búin að labba tvisvar ofan í Bjarnabúð og einu sinni á Skýlið sem er nú engin smá vegalengd þegar sú sem þetta ritað á í hlut. Mamma er heimsótt daglega enda verður að nota tímann vel því langt verður á milli næstu heimsókna.
Ég byrjaði dvölina hér vestra á því að fara á þorrablót Grunnvíkinga á laugardagskvöldið í boði Höllu Signýjar vinkonu minnar og skemmti mér konunglega og dansaði meira að segja, ekki kannski trylltan dans en dansaði þó líkt og sönnum Grunnvíking sæmir. Ég var mest undrandi á því að ég skyldi getað dansað ennþá svona hliðar saman hliðar. Ég lagði þó ekki í " kokkinn" því ég var svo hrædd um að lenda á einhverjum karlinum sem myndi hringsnúa mér svo á dansgólfinu að ég sæi ekki til sólar meira. Ég sat því sem fastast og fylgdist með honum Jóni mínum stíga á tærnar á hinum kerlingunum í staðinn.
Ég er án efa sú útkysstasta persóna bæjarins því allir keppast um að smella á mig kossi hvar sem ég kem og hvert sem ég fer. Ég á víst skilið kossa þegar ég stend í þessari baráttu segja menn og útbreiddur faðmur er víða, svo hlýlega er tekið á móti mér eins og ætíð þegar ég kem heim. Kveðjur frá hinum og þessum dynja á mér og æði margir virðast með hugann við heilsufarið mitt.
Ég skrapp Ísafjörð í gær og viti menn, ég gat keypt mér eitt og annað á góðu verði. Það eru algjör forréttindi að fá að versla í flottum búðum sem allar eru á einum og sama blettinum, tískuvöruverslunin, garnbúðin, ljósmyndastofan og apótekið og ég veit ekki hvað og hvað. Ég held að það væri mikið nær fyrir höfuðborgarbúa að koma vestur til að versla frekar en að arka langa ganga í Smáralind og finna ekkert sem passar fyrr en eftir dúk og disk.
Sóknarpresturinn kíkti við í dag til að líta eftir mér og mínum og Laufey vinkona er væntanlega í hádeginu á morgun svo ætli það sé ekki tímabært að fara að halla sér.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Gott að þú áttir góða ferð með kossum og faðmlögum. Leitt að hafa ekki hitt á þig en sendi þér kossa og knús:)
Katrín, 14.2.2012 kl. 23:52
Ég er enn hér heima og fer ekki aftur fyrr en á fimmtudagsmorgun. Sá þig reyndar berjast á móti rokinu í gærdag og gaf þér vink
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 15.2.2012 kl. 00:01
Ég hef nú líklega ekki séð mikið annað en fæturnar á mér þar sem ég stormaði með töskuna í fanginu helaum eftir byltuna nokkrum dögum áður, en gott að vita af vinkinu:) Er heimavið þessa daga svo ef þú átt leið í Sundstrætið þá er ég í kjallaranum á númer 28:) Njóttu daganna mín kæra
Katrín, 15.2.2012 kl. 07:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.