8.2.2012 | 23:48
Gleymska
Já...ég hef víst gleymt að blogga um nokkra hríð og er það mest um að kenni óhóflegum svefni títtnefndrar. Ég sef eins og þyrnirós allar nætur og tek langa lúra um miðjan daginn. Það er eins og ég óttaðist, ég hef án efa fengið blóð úr einhverjum haugaletingja á atvinnuleysisbótum eða viðlíka vesaling og því geri ég allt með hangandi haus.
Ég er þó búin að hafa það ósköp gott þrátt fyrir allt. Lét mig hafa það að láta klippa hárið því það virðist ætla að tolla eitthvað áfram á toppstykkinu. Anton og Elín komu í heimsókn til okkar og stoppuðu dágóða stund en hann var að fara í læknaeftirlit. Hann hefur farið í gegnum samskonar stofnfrumumeðferð og ég mun fara í og er svo hraustlegur og sprækur og vonandi verð ég bara eins.
Kristinn H. fjárhirðir Einarshúss leit við eitt augnablik og fór yfir bókhaldið yfir kaffisopa og Maddý kíkti við. Læknateymið í Hafnarfirði var sótt heim en Lýður og Íris hafa komið sér vel fyrir í Hafnarfirðinum með öllum sínum krakkaskara.
Annars þá sit ég og prjóna, horfi á sjónvarpið og ét. Ekki má svo gleyma sprettunum sem ég tek til að halda mér í formi en ég skokka oft úr eldhúsinu inn á klósettið og þaðan inn í stofu. Stundum tek ég spretti beint upp í rúm og ligg þar eins og skata yfir æsispennandi glæpaþáttum. Þess á milli knúsa ég krakkana mína og karlinn og er bara nokkuð sátt við það.
Vesturferð er fyrirhuguð næstu daga og hver veit nema maður lyfti sér upp um helgina fyrir vestan og skelli sér á þorrablót
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Vona að þú hafir komist vestur mín kæra og þess vegna ekki látið í þér heyra. Hugsa til þín og þinna<3
Katrín, 12.2.2012 kl. 22:55
átti nú að koma hjarta þarna en ég kann ekkert á þetta lengur...knús og kram :)
Katrín, 12.2.2012 kl. 22:56
Elsku Ragna okkar.
Það sem ég er að sjá og upplífa af frábæru gengi þínu við lífið. Til hamingju með alla þína stórkostlegu sigra. Við trúum því að Höfuðsmiðurinn haldi sérstakri verndarhendi yfir og með þér og er það okkur sérrstakt gleðiefni.
Við biðjum þess að Höfuðsmiðurinn haldi með þér, og þínum sérstakri verndarhendi , hér eftir sem hingað til
Þess óskum við héðan frá Patreksfirði. Gangi þér og ykkur allt í haginn, við stöndum með þér og biðjum Hann að vernda þig og blessa.
Magnús Ólafs, Elzbieta, Sigurjón Jósef, Mariola og Anna Kowalczyk
Manús Ólafs Hansson (IP-tala skráð) 15.2.2012 kl. 21:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.