Í fyllingu tímans

Ekki þýðir að gráta Björn bónda þó einhver smá harðindi séu boðuð handan hornsins. Maður verður bara að bíta á jaxlinn og bölva í hljóði. Ég held að hárið sé farið að losna enn frekar frá hársverðinum af einskærum pirringi yfir þessu öllu saman og það verður svo að vera, ég er svosem búin að búast við því svo lengi að toppstykkið yrði berangurslegt að það er í orden.

Ég gleymdi reyndar að geta þess þegar ég var að segja ykkur frá klúðrinu við stofnfrumumeðferðina að þær reyndu að troða í mig morgunverði í tvígang á spítalanum þarna um morguninn þótt ég væri fastandi svo það virtist engin vita hvað í ósköpunum ég var að gera þarna yfirleitt, svo ekki sé nú talað um þegar umbúðirnar voru teknar eftir legginn á hálsinum, þá var það gert með þvilíku trukki að bringan á mér var eitt flakandi sár eftir plásturinn. Það mætti halda að ég hefði verið lögð inn á bílaverkstæði en ekki sjúkrahús Angry

Það þýðir auðvitað ekkert að nöldra meira yfir þessu. Ég mun verða vel vakandi yfir því að menn vinni vinnuna sína hér eftir og get ekki annað en vonað að sjúkrahúsið yfirfari þessi mál og sjái til þess að þetta gerist aldrei aftur.

Annars þá er ég auðvitað hin hressasta þar fyrir utan, eða þannig. Svoldið þreytt auðvitað og úthaldsminni en ella en geri allt sem mig langar eða flest allt. Stefnan er tekin vestur í heimsókn innan fárra daga og það verður nú aldeilis fínt að komast heim.

Við hjónin fórum í kaffiboð hjá fyrsta bassa sinfóníunnar og hans frú í gær en Hávi og Jón eru gamlir vinir og hljómsveitargæjar frá í denn. Ég var nú að gæla við það að þeir kæmu saman og spiluðu saman á Þorskinum en ekki ómerkari maður en Kristján Edelstein var með þeim í bandinu Sexý ásamt fleirum. Við skulum sjá hvort mér tekst að koma þeim saman í fyllingu tímans.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eins og áður dáist ég að jákvæðninni og eldmóðinum! En það er líka í lagi að vera reið yfir þessu öllu saman þó það komi manni víst ekki langt! Hvurslags umönnunn er þetta eiginlega, vita þeir ekki hver þú ert??

Gangi þér sem best í þessu öllu saman frú Verti! 

Ásta María (IP-tala skráð) 5.2.2012 kl. 13:12

2 Smámynd: Katrín

Það má segja að það er nokkuð sannleikskorn í því sem sagt er: að maður þarf að vera fullfrískur til að eiga við heilbrigðiskerfið. Gangi þér sem best að undibúa heimkomuna:) Knús í hús:)

Katrín, 5.2.2012 kl. 14:35

3 Smámynd: Ragnheiður

Já hérna, mér verður alveg orða vant. Hvað er að upplýsingaflæðinu á spítalanum eiginlega ? Það er rétt sem Katrín segir hér.

Gangi þér vel, ég sé baráttuandann skína hér í gegn og ég er ánægð með það. Hafðu það gott fyrir vestan.

Ragnheiður , 5.2.2012 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband