4.2.2012 | 00:01
Á dauða mínum
Á dauða mínum átti ég von frekar en þeim fréttum sem Guðmundur læknir var með í farteskinu í dag. Stofnfrumusöfnunin klúðraðist algjörlega en það hefur aldrei áður gerst frá því að farið var að gera slíkar aðgerðir á Íslandi árið 2003.
Það gleymdist að gefa mér sprautu í kviðinn um morguninn fyrir söfnun sem skipt hefði getað sköpum hvað varðar fjölda stofnfruma í blóðinu, mælingar úr blóði að morgni voru alveg út úr kú og spurning hvort einhver hafi ekki bara skrifað niður vitlausar tölur sem stuðst var við þegar ákveðið var með söfnun þennan dag. Blóðbankinn taldi vitlaust þegar hann var að telja stofnfrumurnar og vegna þeirrar talningar var leggurinn tekinn alltof snemma úr hálsinum og mér hent út af spítalanum strax um morguninn. Einungis 6,5 milljónir stofnfruma söfnuðust sem er allt og lítið og dugar engan veginn. Ég get ekki verið annað en sársvekkt yfir þeirri röð mistaka sem áttu sér stað þennan dag.
Þess vegna seinkar öllu ferlinu um þrjár vikur til mánuð. Ég þarf að byrja á öllum undirbúningi upp á nýtt. Stóra lyfjagjöfin, allar sprauturnar í kviðinn, allar blóðprufurnar og allt þetta helv....vesen sem ég þarf að ganga í gegnum vegna alls þessa. Ég þarf að fá legginn aftur í hálsinn og ég veit ekki hvað og hvað.
Nú reynir á þolinmæðina svei mér þá og jákvæðnina.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
WHAT...djöf.klúður er þetta!!!!! Vonandi hvæstirðu á liðið þarna syðra, er álagið á heilbrigðisstarfsfólk farið að segja til sín? Svo sannarlega svekkjandi, en þú ert þó vel undirbúin fyrir umferð.2. Knús og kærleikur til þín.
Rósa Sigr.Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 4.2.2012 kl. 00:38
Það er óþolandi þegar fólk vinnur ekki vinnuna sína. Ef einn klikkar brestur keðjan. Eigum við ekki að segja að fall sé faraheill mín kæra og vona að starfsfólk sem er of þreytt til að vinna sína vinnu taki sér hvíldardaga. Nú stappar þú niður fæti og hefur þetta á þrjóskunni. Knús mín kæra
Katrín, 4.2.2012 kl. 00:56
Elsku vina sendi þér Kærleikskveðjur.
Ásta Kristinsdóttir (IP-tala skráð) 4.2.2012 kl. 01:21
Erla (IP-tala skráð) 4.2.2012 kl. 02:08
Æ ! það svekkjast allir með þér, en ömurlegt að lesa.
Jáhérna svona hélt ég bara að gerðist ekki en það er auðvitað minn eigin barnaskapur - það getur allur fjandinn gerst !
Taktu á honum stóra þínum , það er eina leiðin.
Ragnheiður , 4.2.2012 kl. 02:15
Lengi má kvenmanninn reyna. Baráttukveðjur frá Garðaríki.
Ómar Smári Kristinsson (IP-tala skráð) 4.2.2012 kl. 02:32
Jiminn einasti, hvílíkt endemis klúður!
Knús og baráttu- og batakveðjur frá frostköldum Lundi.
E.S. Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast svona vel með hvernig gengur!
Líney Halla Kristinsdóttir (IP-tala skráð) 4.2.2012 kl. 09:25
en grátlegt, knús til þín elsku Ragna.
Steina (IP-tala skráð) 4.2.2012 kl. 09:45
Það hlytur að vera tilgangur með þessu
Það er alla vega betra að trúa því heldur en að stappa niður fæti. Nú er bara að byrja upp á nýtt og trúa á lífið og að það góða sigri að lokum
Baráttukveðja til þín og fjölskyldunnar
Halldóra Sævarsdóttir
Halldóra Sævarsdóttir (IP-tala skráð) 4.2.2012 kl. 14:07
Andsk...helv...djöf...fo..fo....!!!!! Hvernig er þetta bara hægt? Þúsundfaldar baráttukveðjur Ragna mín. Ég held að svona hljóti bara að vera lagt á þá sem standa undir því.
Birna Lárusdóttir (IP-tala skráð) 4.2.2012 kl. 17:06
Þetta eru ljótu fréttirnar. Guð gefi þér styrk til að ganga í gegnum þetta allt aftur og von. Nú bið ég enn heitar að allir standi sig í þessu ferli og geri engin mistök. Baráttukveðjur.
Agnes M. Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 4.2.2012 kl. 17:26
Horfðu á björtu hliðarnar, heimurinn hann gæti verið verri.........Ljótt er að heyra. Guð gefi þér góðan bata. Kveðjur úr firðinum fagra.( Dýrafirðinum)
Gunnhildur Björk Elíasdóttir (IP-tala skráð) 4.2.2012 kl. 20:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.