31.1.2012 | 14:30
Gott að vakna inn í nýjan dag
Mikið lifandis ósköp var gott að vakna í morgun inn í þennan nýja og fallega dag með gærdaginn að baki með öllu því sem honum fylgdi. Ég er eins og nýsleginn túskildingur eftir atið í gær sem tók úr mér allan þrótt.
Það má þó segja það að dagurinn í gær hafi verið hálfgerður kraftaverkadagur því leggurinn stóri var settur í hálsinn í morgunsárið á skurðdeild og síðan var byrjað að safna stofnfrumum af miklum móð strax í kjölfarið og þar gengu hlutirnir hratt og örugglega. Alla jafna geta svona safnanir tekið tvo til þrjá daga og sex tíma í senn en það tók einungis þrjá tíma og þrjú korter að ná nægjanlegu magni stofnfruma í kellinguna sem duga í tvo skammta. Þar með eignaðist ég tíumilljónir í blóðbankanum í formi eigin stofnfruma og sú inneign mun bjarga lífi mínu í tvígang ef svo ber undir svo það er engin smá fjársjóður.
Leggurinn í hálsinum var svo tekinn í gærkvöldi sem betur fer og það var ekkert þægilegt og eins og að sleppa úr prísund að losna við hann. Ég leit út eins og geimvera með loftnet með þetta hangandi út úr hálsinum. Hann hafði þó þjónað sínu hlutverki vel en 12 lítrar af konunglegu blóði títtnefndrar fóru í gegnum hann þann daginn í gegnum skilvindu sem sigtaði stofnfrumurnar frá í sér poka í maskínunni. Stofnfrumunum sem söfnuðust var svo komið fyrir í sérstökum kassa sem farið var með eins og gull enda liggur líf einnar manneskju í innihaldi hans. Stofnfrumurnar eru síðan meðhöndlaðar í blóðbankanum og blandaðar sérstöku efni sem gerir það að verkum að hægt er að frysta þær og geymdar þar til ég þarf á þeim að halda.
Mér var svo hent út af spítalanum fyrir hádegið til að rýma fyrir öðrum veikari og það var bara fínt enda er ég orðin ótrúlega hress.
Ég er því komin heim í Stífluselið og er bara hæstánægð með það. Háskammtameðferðin hefst 21. febrúar. Ég mun því eina þokkalegt frí þangað til, fer reyndar í einhverjar vægar meðferðir og rannsóknir svo ég gleymi ekki tannlækninum sem þarf að laga það sem laga þarf.
Trúlega kemst ég bara vestur í heimsókn í fríinu og það yrði nú aldeilis sérdeilis gaman.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Þú ert þyngdar þinnar virði í gulli mín kæra. Eiguleg innistæða sem þú átt og gefur fyrirheit um góða daga:) Knús og kram:)
Katrín, 31.1.2012 kl. 19:41
Aldeilis frábært!!! Knús og kærleikskveðja úr vorinu í Víkinni fögru.
Rósa Sigr.Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 31.1.2012 kl. 19:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.