29.1.2012 | 20:18
Veruleikafirrt
Ég er búin að vera eitthvað svo veruleikafirrt frá því að ég fékk blóðið í gær að ég er sannfærð um að hafa fengið blóð annaðhvort úr Steingrími Joð eða Jóhönnu Sigurðar. Mér fannst á tímabili alveg eins og ég væri búin að búa til tvöþúsund störf fyrir vestan eins og hendi væri veifað og búin að leysa skuldavanda heimilanna án þess að blikna. Ég hef vísað öllu tali um rúmlega eitthundrað skattahækkanir ríkisstjórnarinnar á bug sem og öllu tali um að fólk væri að flytjast erlendis vegna atvinnuástandsins og svona má lengi telja. Ég taldi meira að segja fólki trú um að allar þessa skattahækkanir skiluðu einhverjum árangri. Svei mér þá ef ég varð ekki líka smá hýr á tímabili
Þetta er nú allt að brá af mér sem betur fer enda rennur í mér frekar blátt blóð þó svo að það hafi svona frekar upplitast svona í seinni tíð.
Ég losnaði úr einangruninni í dag sem þýðir að ég má fara fram á ganginn án þess að hafa grímu. Herbergið er því ekki bara heimurinn heldur er gangurinn og setustofan hluti af alheiminum líka. Í fyrramálið fer ég í legg-ísetninguna sem þjóna mun miklu hlutverki í stofnfrumusöfnuninni. Ég þarf því að fara í sótthreinsibað í kvöld og aftur í fyrramálið svo ég ætti að verða tánduhrein og fín þegar þeir leggja helv...slönguna í æðina á skurðdeildinni á morgun.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Gangi þér vel og þakka þér kærlega fyrir færslurnar þínar.
Agla (IP-tala skráð) 29.1.2012 kl. 21:20
Ragna mín gangi þér vel og í Guðanna bænum láttu þig dreyma um eitthvað annað og fallegra ein Jóhönnu og Steingrím
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.1.2012 kl. 23:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.