28.1.2012 | 09:14
Varnareinangrun
Það fór þó ekki svo að flensan færi eins og til var ætlast. Hitinn var rokinn upp úr öllu valdi í gærmorgun og því ekkert annað í stöðunni en að hypja sig á Lansann. Ofnæmiskerfið hafði ekki kraft til að vinna á þessri aulapest þrátt fyrir penselítöflur og hvítu blóðkornin voru komin nánanst niður á núllið eða 0.3 og megnið af hinu var í hálfgerðu skralli. Meira segja var kellan orðin hálf blóðlaus og panta þurfti tvo poka frá blóðbankanum sem gefa átti mér síðar um daginn til að rétta mig við. Leiðin lág því þegar líða tók á daginn á blóðmeinadeildina mína og þar var ég sett í einangrun sem þýðir að ég held kyrru fyrir í svítunni minni en má fá heimsóknir þeirra sem eru stálslegnir og lausir við allt kvef og þess háttar. Ég er því að taka smá forskot á sæluna því eftir háskammtameðferðina fer ég aftur í slíka einangrun hér á deildinni. Ég þarf varla að blikka auga þá koma hjúkkur til að stjana við mig endalaus og þó nokkrar þeirra geri sér far um að stinga mig annað slagið eru þær hver annarri yndislegri.
Gærdagurinn fór því í andstyggðar veikindi og slappleika og þegar gefa átti mér blóðið var ég með það mikinn hita að það verður að bíða til dagsins í dag. Verst þykir mér ef ég fæ blóð úr einhverjum vitleysing sem gerir mig enn verri en ég er, en það verður að koma bara í ljós. Beinverkirnir sem mér voru lofaðir í þessari lyfjameðferð eru farnir að herja á kroppinn og ég væri bara hreinn og klár lygari ef ég segði að þeir væru eitthvað þægilegir en þeir eru samt góðs viti því þá eru stofnfrumurnar að losa sig úr beinunum í blóðið svo þetta eru svona frekar gott, vont, verkir.
Ég hef tölvuna og prjónana og get því haft ýmislegt fyrir stafni í dag ef ég verð þokkaleg. Búast má við að ég verði hér yfir helgina og kannski eitthvað fram í næstu viku. Það á að setja æðalegginn í hálsinn á mánudaginn svo kannski verð ég bara hér eitthvað áfram, hvur veit.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Æ hvað er að heyra mín kæra :( Leiðin að bata er hlykkjótt og brekkur allstaðar en mundu að :
oft er brekkan brött
og býsna þung mín byrði
mér finnst oft ég standi í stað
og stefnan einskis virði
en að hika er út í hött
ég held ég viti það
ég vil sjá og sigra.
ég sættist ekki á minna
hugurinn ber mig hálfa leið
hitt er bara vinna
úr ljóðinu brekkan e. hörð torfa
Bestu kveðjur og vona að það takist að halda þér verkjalausri:)
Katrín, 28.1.2012 kl. 09:21
Ææ, elskan. Leitt að heyra. En gott að vita til þess að vel sé hugsað um þig og brugðist skjótt við. Knús og kærleikskveðjur. Vonandi hristir þú þennan ófögnuð fljótt af þér.
Sólrún Geirsdóttir (IP-tala skráð) 28.1.2012 kl. 09:29
Batnaðarkærleikskveðjur til þín kæra Ragna. Þú ert svo mikil ofurkona manstu, þú tæklar þetta eins og allt annað!
Kveðja úr hlákunni í Njarðvík!
Ásta María (IP-tala skráð) 28.1.2012 kl. 09:42
Ég veit þú ert í góðum höndum og verður fljót að hrista þetta af þér. Daníel er blóðgjafi, kannski færðu bara blóð úr honum :))
Elín (IP-tala skráð) 28.1.2012 kl. 09:46
Knús til þín Ragna, þú hristir þetta af þér soddan kjarnakona!!! Kveðja úr rigningunni fyrir vestan.
Rósa Sigr.Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 28.1.2012 kl. 13:19
Gangi þér vel, duglega, jákvæða og skemmtilega frænka mín!
Gott að fá að fylgjast með þér...við hugsum til þin og sendum þér batakveðjur. Kær kveðja frá mér og Halla.
Ingibjörg Gísladóttir (IP-tala skráð) 28.1.2012 kl. 22:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.