26.1.2012 | 07:26
Ró
Vaknaði klukkan sex að venju en nú eftir góðan lúr og fór fram í áttina að ískápnun og fékk mér snarl. Vindurinn hefur gnauðað á gluggann í nótt og af og til lætt sér inn í svefnrofana en ég hef ætíð getað sofnað aftur svo það er ekki undan neinu að kvarta.
Elsa fékk að sprauta mig í gærkvöldi svo þar með hefur hún prufað að " sprauta honum" svona einu sinni. Hún var að vísu föl sem nár en tókst að stinga títtnefnda beint í belginn og getur því merkt við það í kladdann. Sprauturnar fara vel í mig ennþá en vænta má þess að þegar líður að helgi geti þær valdið beinverkjum og flensueinkennum en það kemur bara í ljós. Hárið tollir enn á toppstykkinu sem er nokkuð vel af sér vikið en það fer víst í háskammtameðferðinni segja menn en þær frumur sem skipta sér hraðast, mergfrumurnar, krabbameinsfrumurnar og hárfrumurnar verða slegnar út ásamt flestum öðrum frumum held ég svei mér þá.
Jón skrapp á Skagann í gærkvöldi til að hitta Lilju ljósbera eitt augnablik og Anton hennar. Þar gengur lífið sinn vanagang og allt væri í gúddý ef Lilja væri ekki lasin meira og minna með þessari óléttu sinni. Andri er á frívakt í álverinu og er að kenna bóklegt í flugskólanum á fullu þennan dyntinn og Þórunn er í prófum í Snyrtiakademíunni og hefur í nægu að snúast. Tengdamamma verður módelið hennar í handsnyrtingu í dag en Elsa var módel í fótsnyrtingu í gær svo enginn tími er látinn fara til spillis og allir í fjölskyldunni eru nýttir til hins ýtrasta og það er svei mér fínt. Á meðan tek ég hlutunum með ró og er ekkert að þvælast eitt eða neitt nema þá helst til að þvælast fyrir. Er að koma mig af flensunni og farin að prjóna sem er merki um að allt sé í orden.
Snjónum kyngir niður á réttláta sem rangláta hér fyrir sunnan á þessum sjóavetri mikla þegar Vertinn í Víkinni dagaði uppi í Reykjavík. Ég held að þessi vetur verði skáður á spjöld sögunnar líkt og frostaveturinn mikli árið 1918 þegar spánska veikin gekk manna á meðal. Þessi vetur verður veturinn þegar Vertinn fór í meðferðina og Reykjavík breyttist í snjóakistu. Það skortir reyndar ekki snjóinn í þorpinu heima heldur en fregnir herma að þar sé allt að fara í kaf og einungis fært til Hnífsdals gegnum göngin. Vonandi þurfa íbúar þessara þorpa undir fjallshlíðunum fyrir vestan hvorki á lögreglu né lækni að halda í þessu ástandi því sú þjónusta er öll kominn til Ísafjarðar en þangað var amk. ófært í gær. Annars heyrði ég eftir gárungunum í gær að ekkert vantaði til Bolungarvíkur nema vínbúð og þá væru Hnífsdalingar í góðum málum og þyrftu ekkert að leita til Ísafjarðar en það sel ég auðvitað ekkert dýrara en ég keypti.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.