Send heim

Það var eins og búist var við að hittinn hafði gert sig heimakominn og nokkuð hár að gærmorgni. Leiðin lág því rakleiðis niður á Lansann því grannt þarf að fylgjast með því að ójafnvægi skapist ekki á líkamsbúskapinn. Ótal blóðprufur voru teknar úr fína brunninum sem gáfu til kynna að allt var í stakasta lagi og lungnamyndataka sýndi að ekkert var í lungum svo einhver sýking hefur myndast önnur sem orsakaði kvef og hita. Vertinn var því sett á pensilín og send heim þegar líða tók á daginn, sem betur fer . Þar lág ég eins og skata í allan gærdag og svaf eins og hver annar vesalingur mestan part dagsins eins og eðlilegt er þegar veikindin dúkka upp rétt sí svona. Ekki lét ég þó súkkulaðikökuna sem ég boði var í afmæli tengdamömmu fram hjá mér fara um miðjan daginn en töluverður gestagangur var þess vegna í Stífluselinu og það var bara gaman. 

Jón sprautaði mig svo samviskulega í gær og eru þá tvær sprautur af þessari tegund komnar í vömbina af átta sprautum sem eiga að rata í kroppinn í þessari viku. Jón er því orðin hjúkka núna í bland við allt annað og stendur sig vel í því hlutverki eins og öðru.

Núna er ég vakandi kl. sex að morgni og finn að ég er eitthvað að skána. Búin að fá mér mjólk og matarkex og er bara í góðum gír og fínu stuði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bestu kveðjur á ykkur Ragna mín og vonandi ertu að skána af pestarskömminni!

Kv frá Ísó!

Sóley V (IP-tala skráð) 25.1.2012 kl. 08:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband