Hljómar í Hörpu

Það er eins gott að fylgjast vel með og vera með kollinn í lagi þegar staðið er í slikri vinnu sem krabbameinsmeðferð er því það er að mörgu að hyggja.  Ég hafði náttúrurlega gleymt að taka með mér þrjár beiðnir í blóðprufuna á föstudaginn var og hringdi því í snarhasti á blóðmeinadeildina mína á Lansanum í gær þegar ég loksins uppgötvaði þetta og bar mig illa við hjúkkuna. Ég var auðvitað boðin þangað velkomin til blóðtöku sem ég og gerði svo það mál leystist farsællega.

Ég hafði svosem lítið sofið um nóttina þrátt fyrir að hafa tekið svefnlyf því hlandblaðran var alltaf á ónáða mig og ég ranglaði sífellt á klósettið og um húsið eins og rallhálf drós á búllu í Húll, ég sem ekki bragða áfengi og ekki gert í árafjöld.

Það gerði þó gæfumuninn að ég gat lagt mig seinni partinn og hlaðið batteríin fyrir kvöldið en stefnan var tekin á Hörpuna til að hlýða á James Bond tónleikanna með Sinfóníunni. Þeir voru geggjaðir og það var alveg frábærlega gaman. Þar snart svo sannarlega hörpu mína hin himinborna dís.

Svo hverjum manni ætti að vera það ljóst að Vertinn í Víkinni nýtur lífsins eins og frekast er kostur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín

Maður má nú gleyma þegar lítið er sofið:) Gott að þú komst á tónleikana, góðir tónar gleðja. Knús og kram frá Ísó:)

Katrín, 23.1.2012 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband