20.1.2012 | 23:02
Vont en það venst
Vertinn vaknaði fyrir allar aldir til að mæta á réttum tíma í blóðprufu fyrir lyfjagjöf. Ég skóflaði í mig kynstrum af pilludrasli og svo héldum við oneftir. Ég tók reyndar óviljandi tíu steratöflur svona til öryggis en það vakti bara kátínu á krabbameinsdeildinni, en ég átti víst ekkert að taka stera fyrir þessa gjöf en hvernig í ósköpunum átti ég að vita það? Í blóðprufunni sat ég eins og stilltur krakki og beið eftir því að verða stungin í handlegginn svo hægt væri að fylgjast með blóðgildunum mínum. Þau eru svoldið neðarlega af því að það er verið að keyra svoldið á lyfjameðferðina núna. Það mun trúlega verða til þess að stofnfrumusöfnunin tekur amk. tvo daga sagði Guðmundur læknir og ekki lýgur hann.
Ég settist svo í stólinn og sat þar meðan Harpa hjúkka stakk í brunninn með sinni alkunnu færni. Þegar til kom átti ég að fá miklu sterkari lyf en venjulega eða fjórfalt meira, svo það tók fimm klukkutíma allt í allt þegar með eru talin beinþéttilyfið og saltvatnið fyrir utan ógleðistöflur og lyf til að verja blöðruna mína fyrir þessu eitri sem þessi krabbameinslyf eru. Þetta hlóðst svo allt utan á mig því líkaminn gat ekki losað sig við allan þennan vökva svo hann safnaðist í bjúg hér og þar. Þess vegna þurfti ég að fá eina helv. pilluna með mér heim til að geta pissað eins og manneskja, ég er reyndar búin að fara 20 sinnum á klósettið síðan ég koma heim, drekka marga lítra af vatni og enn er bjúgurinn þarna en samt eitthvað minni. Ég gat prjónað heila húfu á meðan ég innbyrgði þetta gleðiglundur svo tímanum var sko alls ekki varið til einskis.
Mér finnst það nú fullhart hart þegar " fullfrísk" manneskja eins og ég, skuli þurfa bæði lyf til að kúka og pissa svona allt í einu
Hjá lækninum fékk ég styrkbeiðni fyrir höfuðfötum og þangað dreif ég mig strax af aflokinni lyfjagjöfinni og eyddi öllum styrknum á nótæm og er svo sátt og glöð með það.
Ég gætti mín vel á því að segja Guðmundi lækni ekki frá því að ég væri að fara í Hörpuna annaðkvöld með Hrefnu mágkonu og Bigga á tónleika Sinfoníunnar þar sem flutt verða lög úr Bond myndum en Jón hefur mikið dálæti á Bond og langaði að gera þetta í tilefni þess að hann varð árinu eldri í gær. Ég tækla mig í gegnum það eins og allt annað.
Þorramatur var snæddur um kvöldið og það bragðaðist frábærlega þó svo að það hafi verið pínulítið járnbragð af öllu en það er alvanalegt þegar verið er að taka öll þessi lyf og það er vont en það venst.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Þú ert nú bara yndisleg mín kæra. 10 sterkatöflur og þú verður búin að prjóna skotthúfur á alla íbúa Bolungarvíkur og gott ef ekki sokka og elta skin í skó:) Good luck Iron Lady:)
Katrín, 20.1.2012 kl. 23:14
...steratöflur...en mega örugglega heita sterkatöflur líka .)
Katrín, 20.1.2012 kl. 23:15
Þú ert seig, ólseig og með húmorinn i lagi
Ragnheiður , 21.1.2012 kl. 23:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.