Komin

Vertinn er aftur komin í útbreiddan faðm tengdamömmu eftir æði vel heppnaða verð heim. Það var svo gott að komast vestur og hlaða batteríin að það hálfa væri heill hellingur, fylla lungun fjallalofti og sjá og hitta fólkið sitt, njóta veðurblíðunnar og finna angann af sjávarloftinu. Nú er ég fær í flestan sjó og til í hvað sem er.

Mamma var heimstótt upp á hvern dag á Skýlið og hún var sátt við að kveðja mig þegar ég fór vitandi það að ég kæmi aftur þegar sól hækkaði á lofti. Ég þyki líta vel út og það róaði hana og bara fólk yfirleitt. Ég reyni auðvitað að vera sama skutlan og ég var, hleð á mig skarti og skrauti til að líta sem best út og það hefur auðvitað sitt að segja. Svo er það bara ótrúlega stór hluti þess að fá svona sjúkdóm að reyna að fullvissa aðra um að þetta verði allt í lagi og ég verði betri en áður.

Margir litu inn í heimsókn meðan ég dvaldi vestra og það var gaman að sjá alla rétt í svip. Jón Bjarni var líf mitt og heilsa þar eins og hér og var hin ágætasta húsmóðir meðan ég tók á móti gestum líkt og drottning.

Ferðin suður gekk eins og í sögu í gær og ég kvaddi Vestfirðina með söknuði enda veðrið og færðin æðisleg fyrir vestan, þetta er bara eins og annar heimur. Það var ekki fyrr en komið var ofan í Borgarfjörðinn sem veður gerði snælduvitlaust og við rétt náðum upp á Akranes til að fara með ungu verðandi foreldrunum í sónar að sjá barnabarnið sem lifir og hrærist í Lilju. Þetta er nú meira veðravítið hér syðra segi ég nú bara og tel mig hafa reynslu eftir veturinn í vetrarhörku. " Ég skil bara ekki hvernig fólk getur búið hérna" myndi ég segja ef ég bara þyrði því

Þar var sko fjör á fróni í sónarnum því litla krílið hamaðist svo mikið allan tímann og reyndi eins mikið og það gat til að sína okkur hve liðugt það væri og það var alveg yndislegt. Verðandi foreldrarnir eru bæði kraftmikil svo þetta er alveg eðlilegt svosem. Allt virtist heilbrigt og lítill drengur mun líta dagsins ljós í júní í sumar svo ég má aldeilis fara að prjóna úr bláu.

Kjötsúpa beið okkar í Stífluselinu og það toppaði daginn. Prjónarnir biðu svo því ég fékk lánuð prjónablöð hjá Gunnu og hef því nóg fyrir stafni.

Í þessum skrifuðu orðum er ég smá andvaka og gæði mér á konfekti og mjólk í bland við bloggið.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín

Veðrið fyrir sunnan er síbreytilegt líkt og hér vestra:) Gott að þú náðir nokkrum dögum heima, mömmu þinni örugglega til mikillar gleði og svo öllum hinum. Blátt er fallegur litur :)

Katrín, 19.1.2012 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband