Smá fréttir að heiman

Þvílíkt dýrðarinnar sæla það er að vera komin heim. Það er eins og ég fyllist af orku frá fjöllunum, hafinu of fólkinu mínu hér vestra. Geri kannski ögn meira en góðu hófi gegnir eins og gengur en trúlega er það bara til hins betra ef ég fer mér ekki of geyst.

Ferðalagið vestur gekk svona nokkuð áfallalaust fyrir utan að við festum okkur á Þröskuldum en við sluppum þó með skrekkinn. Ég var svo full af orku á leiðinni enda steradagur og líðanin bara góð alla leið. Mamma beið á Skýlinu eftir okkur glaðvakandi þrátt fyrir að klukkan væri orðin æði margt og það urðu sko fagnaðarfundir. Síðan var haldið í miðnæturmat til Gaua bróðurs sem hélt uppi heiðri foreldranna en mamma og pabbi buðu okkur ævinlega í mat þegar við vorum á leiðinni vestur og mér finnst það bara vera góður siður. Þar var reykt nautatunga í boði með öllu tilheyrandi.

Það þarf svosem ekkert að fjölyrða um það, að það er eins og ég sé heimt úr helju og allir svo glaðir að sjá mig og þurfa að umvefja mig hvar sem er. Benni Sig. stökk nánast út úr bílnum á ferð til að smella á mig kossi svo þetta getur verið mjög áhættusamt fyrir ökumenn að sjá mig svona í svip sérstaklega í þessari hálku. Gunna og Ingimar buðu okkur í mat á sunnudagskvöldið og það var nú sko ekki ónýtt að fá saltkjöt á þeim bænum enda eru þau góð heim að sækja.

Ég kíkti á Sýsluskrifstofuna í dag og þar var mér fagnað eins og gamalli stríðshetju líkt og á Bæjarskrifstofunni og bara hvar sem ég kem við, allir svo yndislega góðir. Ég er búin að verja smá tíma á æskuheimilinu mínu við smá tiltekt í dag en ég er svosem engin manneskja til stórræða enda hafa Gaui og Jón verið þar í dag að laga til.

Halla og Siggi, Dæja, Elín og Anton kíktu svo í kvöldkaffi í kvöld sem var alveg frábært. Ég á daginn á morgun eftir heima og þarf að gera eitt og annað.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Passaðu nú að ofgera þér ekki þegar þú ert komin heim í konungsríki sem þarf að stjórna og stússast í. Þar ert þú svo sannarlega í áhættuhópi. Gott að vita af þér hér vestra, samt.

Ómar Smári Kristinsson (IP-tala skráð) 17.1.2012 kl. 03:01

2 identicon

Þetta er gott dæmi um það hvernig Bolvíkingar eru vinir í raun og standa saman þegar á reynir. Njóttu þess að vera heima en mundu að fara vel með þig. Kíki kannski til þín í dag.

Sólrún Geirsdóttir (IP-tala skráð) 17.1.2012 kl. 07:54

3 identicon

Heima er best (og þá á ég við Bolungarvík í allri sinni dýrð)! Það jafnast ekkert á við orkuna úr fjallahringnum okkar!

Eigðu dásamlegar stundir heima og gangi þér vel þegar þú kemur suður aftur!

Ásta María (IP-tala skráð) 17.1.2012 kl. 08:31

4 identicon

Elsku Ragna mín: Mikið eg gott að vita og sjá hvað þú ert brött,svona út á við.Þetta er vestfirska þrjóskan og (rauða hárið) Guð gefi þér góðan bata og gangi þér vel:

Kristín Una Sæmundsdóttir (IP-tala skráð) 17.1.2012 kl. 11:51

5 Smámynd: Ragnheiður

Þú ert náttlega stríðshetja Ragna :) farðu varlega með þig í gleðinni allri en njóttu knúsanna, vinaknús eru dásamleg

Ragnheiður , 17.1.2012 kl. 15:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband