Dagur 59 - föstudagurinn 13

Ragna og LaufeyLaufey vinkona leit við í morgunsárið og það er ætíð gaman að hitta hana. Þaðan var farið í sprautuna fínu og í kjölfarið hitti ég hjúkrunarfræðinginn sem heldur utan um háskammtameðferðina mína og fór hún yfir næstu vikur með okkur. Ég byrja í allskyns lyfjagjöfum þann 20. janúar eins og áður hefur komið fram og er í henni alla daga þaðan í frá fram til mánaðarmóta en reiknað er með að þá byrji stóra stofnfrumumeðferðin. Bjúgurinn sem er að hrella mig núna er út af sterunum en ég blæs út hér og þar en það lagast í fyllingu tímans...vonandi

Í  miðri háskammtameðferð þarf ég að sprauta mig tvisvar á sólarhring sjálf en ég sagði hjúkkunni að Jón hefði einhvertímann sprautað hundinn svo hann væri fullfær um að aðstoða mig við það og þar með var það ákveðið. Elsa hefur líka líst yfir áhuga sínum á því að fá að stinga mig en það kemur í ljós hvort ég hleypi henni í það verkefni.

Ég fékk líka að vita það að safnað verður í tvo stóra skammta svo ég mun eiga einn skammt upp í erminni ef á þarf að halda síðar sem er auðvitað mjög gott.

Að öðru leiti var ég heiftarlega hress í dag og labbaði um Laugarveginn eins og hver annar. Skellti mér inn á kaffihús og allt hvað eina.

Við stefnum heim á morgun og vonandi gengur það allt eftir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gangi þér vel í þessu öllu :) gaman að fylgjast með þér..bestu kveðjur kolla

Kolbrún Björg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 14.1.2012 kl. 01:39

2 Smámynd: Katrín

Góða ferð vestur. Vona að hálka sé horfin og þið rennið þetta greitt:)

Katrín, 14.1.2012 kl. 01:43

3 identicon

Laufey er dásamleg - ekki leiðinlegt að fá hana í heimsókn!

 Þú ert algjör dugnaðarforkur og skrifin þín eru lýsandi dæmi um jákvæðnina og hugrekkið sem í þér býr! ÁFRAM RAGNA!

Ásta María (IP-tala skráð) 14.1.2012 kl. 02:30

4 identicon

Góða ferð, vinkona. Kannski maður fái að sjá framan í þig.

Sólrún Geirsdóttir (IP-tala skráð) 14.1.2012 kl. 09:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband