12.1.2012 | 00:16
Dagur 57 - miðvikudagur
Vertinn brá heldur undir sig betri fætinum í dag og fór á kuldaskónum og á neglda dreifbýlisfjallabílnum í Kost til Söllenberger og skoðaði úrvalið í amerísku búðinni. Það var eitt og annað til þar sem gaman var að sjá og skoða. Söllenberger sjálfur tók ekkert sérstaklega á móti títtnefndri og hennar skylduliði en hefði án efa verið þarna ef hann hefði vitað af mér. Ég get svosem komið aftur.
Fyrsti bassi í Sinfóníuhljómsveit Íslands og fornvinur Jóns Bjarna, hann Hávarður, einmitt sá hinn sami og hjólaði Vestfjarðahringinn svo eftirminnilega í fyrrasumar til að styrkja verkefnið " Á rás fyrir Grensás" hringdi í dag og bauð okkur á tónleika í Hörpunni annað kvöld með hljómsveitinni og fleirum. Þar eigum við varðveitta miða án efa á besta stað og eftir tónleikanna fáum við leiðsögn um þetta glæsilega hús í boði Háva. Ég geri ráð fyrir því að Halldór Jón, bolvíski húsvörður Hörpunnar láti ljósasjóvið leika lausum hala í byggingunni okkur til heiðurs og í tilefni af heimsókninni. Ég er svo spennt að fara og lyfta mér aðeins upp.
Annars er heilsan bara góð í dag eins og venjulega svosem. Vakti í alla nótt eins og stundum áður en ég ætla að taka eitthvað sem slær mig út í kvöld til að geta sofið svo ég vakni eldhress inn í nýjan dag.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Gaman að koma í Kost og skoða allar amerísku kræsingarnar og fínerið en mér finnst nú verðlagið eitthvað úr takti við það sem gerist í fyrirheitna landinu:) Gott að heyra að þú sért þokkalega hress og á leið á tónleika. Slík ferð gerir þér örugglega bara gott. Og ertu svo að fara að kíkja vestur mín kæra???? Góðan nótt, sofuðu rótt, Guð geymi þig í alla nótt
Katrín, 12.1.2012 kl. 01:36
Það er sko margt að sjá í Kosti, ég skrepp þangað við og við. Kaupi voðalega stórar pakkningar af sápum og öðru sulli. Venjulega er Sullenberger á gólfinu og heilsar vingjarnlega sínum kúnnum. Þú hefur áreiðanlega rétt misst af honum :)
Vonandi nærðu að hvíla þig svolítið.
Ragnheiður , 12.1.2012 kl. 07:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.