10.1.2012 | 22:00
Dagur 56 - þriðjudagur
Þetta er nú meira vetrarríkið hér syðra. Hér skefur í skafla og vindurinn lemur glugga líkt og í verstu vertarhörkum fyrir vestan. Það var þá að ég skildi daga uppi í höfuðborginni akkúrat núna þegar veturinn er með þessum hætti. Rafmagnið er meira að segja stopult eins og heima og allt hvað heita hefur. Það sem er þó gleðiefni hér fyrir sunnan að maður þarf ekki að borga raforkuna með lífi sínu liggur við, því annað eins okur og hjá OV er algjörlega forkastanlegt og algjörlega til skammar hvernig fólki er mismunað eftri svæðum í sama landinu. Maður sættir sig aðeins betur við smá gloppur í allri ljósadýrðinni hér syðra vegna þess að það er ódýrari húshitunin.
Ég komst klakklaust á deildina mína í morgun og fékk dagskammtinn af glundrinu mínu og leyfi frá lækninum til að skjótast vestur um helgina ef allt verður í orden. Hann hafði orð á því hve ég væri hárprúð ennþá og ég sagði að ég væri svoddan kjarnorkukerling að það biti ekkert á mig. Hann brosti þá í kampinn og sagðist geta lofað mér því að þegar háskammtameðferðinni væri lokið yrði ekki á mér stingandi strá.
Ég er orðin pínulítið blóðlaus skv. blóði dagsins, ekki nægjanlega mikið þó til að fá blóð en það dugir þó til þess að gera mig slappari en ella. Það verður tekið blóð aftur á föstudag og þá kemur í ljós hvort ég hafi risið eða dalað í blóði. Blóðleysinu virðist fylgja svitaköst sem alla jafna hrjá miðaldra kerlingarskruggur en þar sem ég er enn svo bráðung hlýtur þetta að hafa allt aðrar skýringar en miðaldurskreppu af einhverjum toga. Þetta er allt hálfgerður línudans og kúnst að ná jafnvægi á kroppinn en svona er þetta. Verst að veðurguðinn skuli spá rigningu og hálku um helgina en þá ætlaði ég vestur en við skulum sjá hvað setur.
Vertinn hefur því hlustað á vindinn gnauða í dag við gluggann. Ég hef ekkert verið að fylgjast neitt sérstaklega með klaufagangi höfuðborgarbúa á blankskónum sínum og á sumardekkjunum í vetrarumferðinni enda löngu hætt að velta mér upp úr þvílíkri endaleysu.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Mikið er ég leið á þessu blaðri um að borgarbúar séu á spariskóm og sumardekkjum. Ég er reyndar ellilífeyrisþegi gömul skrugga en ég held að þið af landsbyggðinni eigið ekki alltaf að vera að senda okkur tóninn ég sé ekki betur en að þið utan af landi lendið í ógöngum en mér dettur ekki í hug að þeir séu allir á ballskóm og sumardekkjum en svo þetta gangi þér vel í lyfjameðferðinni og guð blessi þig og alla íslendinga
kær kveðja Guðbjörg
Guðbjörg Gísladóttir (IP-tala skráð) 11.1.2012 kl. 13:48
Elsku Ragna mín farð þú bara varlega í allri þessari ó tíð sendi þér kærleikskveðjur kv Ásta.
Ásta Kristinsdóttir (IP-tala skráð) 12.1.2012 kl. 07:29
vona að þú komist vestur um helgina, knús á ykkur í Breiðholtinu.
Steina (IP-tala skráð) 12.1.2012 kl. 20:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.