Dagur 53 - laugardagur

Það er víst vissara að setja nokkrar línur niður á blað svo dyggir lesendur haldi ekki að ég hafi hrokkið upp af í einum vetfangi. Það er nefnilega síður en svo enda sprelllifandi og stálhress. Það ber trúlega að þakka þessum bévítans sterum sem hamla orðið svefninum og ræna mig draumum og allt hvað heita hefur. Þeir halda mér uppi megnið af sólarhringnum og fyrir það ber að þakka.  Mig sifjar ekkert og ég ligg bara eins og skata og bíð eftir Óla lokbrá sem virðist fara með ógnarhraða framhjá Stífluselinu. Ekki það að sjónvarpið hefur ofan af fyrir mér eða tölvan svo þetta er allt í lagi, bara óvanalegt því ég hef alla tíð verið mikil svefnpurka og þótt einstaklega gott að sofa. Ég fæ því að heyra allskonar næturhljóð fyrir vikið, bíla að aka um og fólk að koma í blokkina á öllum tímum, sumir pissa standandi að mér heyrist og sumir sitjandi eins og gengur á hinum og þessum tíma sólarhringsins og einstaka hrotur berast um húsið. Það er aðeins meira ónæði en við Hólastíginn heima þar sem einungis eru örfá hús og örfáir íbúar við götuna. Þar heyrist í sjófuglunum og niðurinn frá sjónum róar manni í svefninn. Aðeins er rumskað þegar nágranninn fer á sjóinn en síðan ekki söguna meir. Þar hef ég reyndar aldrei verið á sterum svo það er ekki að marka.

Ég lét það eftir mér að fara í Kolaportið í dag og fékk út úr því alveg ágæta hreyfingu. Það var nú reyndar afskaplega lítið að sjá og það var eins og að koma inn í daunillan gamlan fataskáp sem var fullur af allskyns drasli. Fyrr um daginn fór ég með Jóni að skoða aðstöðu fyrir trommara niður á Granda en hann má ekki missa niður taktinn meðan hann dvelur hjá mér fyrir sunnan og verður að æfa sig sem mest hann getur.

Slátur var síðan borðað með bestu list hjá Andra og Þórunni en Elsa var í allan dag að læra með vinkonum sínum. Lilja og Anton voru fjarri góðu gamni enda leiðinda veður og mikil hálka og því varla þorandi að fá þau hingað í dag. Vonandi komast þau á morgun.

Ég hef semsagt haft það fínt í dag og gert heilmikið þrátt fyrir allt.

Ég ætla nú samt að láta eina svefntöflu eftir mér núna til að athuga hvort hún slái mig ekki í rot.

Góða nótt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín

Hugsaðu þér hvað þú getur nú skrifað um á nóttunni Ragna, þú þessi frábæri penni. Skáldsaga úr Stífluselinu, um íbúana og uppdiktað líf þeirra:) Að ölllu gamni slepptu þá vona ég að taflan góða hafi fært þér næturró og dagurinn verði þér góður:)

Katrín, 8.1.2012 kl. 12:25

2 identicon

Sterar eru snilldardóp... hef étið þá samviskusamlega uppá hvern dag í 4 ár núna... litla skammta þó og sef eins og grjót (of lengi að mati sumra á heimilinu) en má ég mæla með því að þú eignist Ipod eða annan álíka mps spilara og hlustir á´hljóðbækur..... (losnar við að fletta, hafa ljós og heyrir ekki nágrannahljóðin) ég á slatta af bókum sem ég gæti sett á disk handa þér.

steina litla frænka (IP-tala skráð) 8.1.2012 kl. 20:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband