Dagur 52 - föstudagur

Sterarnir héldu fyrir mér vöku í nótt líkt og undanfarið en þá var brugðið á það ráð að taka svefntöfluna góðu sem gerði nokkuð gagn. Ég var því hálf ringluð þegar Auður systir hringi í morgun og tilkynnti að hún væri orðin amma en Maggi og Þóra eignuðust afskaplega hrausta og heilbrigða dóttir í morgun. Það er því þegar farið að fyllast í skörðin sem skilin voru eftir í fyrra en rétt tæpir níu mánuðir eru síðan pabbi dó. Þegar Lilja ljósberi fæðir sitt barn verða níu mánuðir frá því að tengdapabbi dó og það er nokkuð merkilegt. Það er eins og þeir séu að koma aftur blessaðir karlarnir.

Andri fór með mig í sprautuna í dag og það var létt verk og fljótlegt, bara rétt ein stunga í vömbina. Ég gat lagt mig um miðjan daginn og það var svo sannarlega góður lúr. Það eru því góðar fréttir héðan, allt í rólegheitunum svosem enda engin ástæða til annars en að taka lífinu með ró.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín

til hamingju með að verða orðin ömmusystir. Afinn í móðurætt er góður æskuvinur minn og nágranni úr Garðahreppnum. Bjuggum hlið við hlið og mikill samgangur. Daman er bara dásamlega falleg:) Vona að dagarnir framundan verði þér góðir mín kæra og kannski ferðu að koma heim?

Katrín, 6.1.2012 kl. 23:04

2 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Takk fyri kveðjuna Kata og já litla daman er bara dásamleg. Ég varð nú reyndar ömmusystir fyrir 25 árum síðan þegar elsta systir mín varð amma í fyrsta sinn en Maggi er nú svona næstum eins og minn

Að öllu óbreyttu kem ég heim næstkomandi helgi og þá verður væntanlega hátíð í bæ.

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 7.1.2012 kl. 01:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband