6.1.2012 | 00:50
Dagur 51 - fimmtudagur
Allt í einu eru sterarnir að gera mig vitlausa og ræna mig öllum svefni. Ég vandræðast allar nætur helst valkoppandi kringum helv. ísskápinn til að gleypa í mig allan andsk....en get ekki sofnað samt. Ég brá á það ráð að taka eina svefntöflu þegar leið undir morgun og það sló mig út af laginu fyrir rest. Ég aldeilis óvön því að geta ekki sofið, það hefur frekar verið í hina áttina að ég hef sofið allt of mikið svo þetta er alveg nýtt.
Fjárhirðir Einarshúss, hann Kristinn H. kom í morgun til að ganga frá pappírum og fljótlega í kjölfarið fékk ég heimsókn alla leið frá Noregi en þar býr " litli" strákurinn hann Bjarni Heiðar sem ég passaði eitt sinn og er nú orðinn svo stór og kominn með sína fjölskyldu. Það var reglulega gaman að fá að sjá þau og hitta.
Seinni partinn lág leiðin upp á Akranes til að hjálpa Lilju ljósbera að koma sér fyrir á heimavistinni en hún byrjar í skólanum á morgun. Ég hef góða tilfinningu fyrir þessum vetri og held að hún eigi eftir að hafa það fínt á Skaganum og vona bara að heilsan hennar verði góð í vetur.
Ég fæ gleðiglundrið á morgun og Andri fer með mig þangað því Jón er upptekinn í öðru og Elsa byrjuð á fullu aftur í skólanum enda hversdagsleikinn tekinn við í öllu sínu veldi og það er bara gott.
Ég er semsagt búin að eiga skemmtilegan dag, svolítið ör væntanlega út af svefnleysi og áhrifunum af sterunum og hef lítið getað slakað á enda finn ég það alveg á blessuðu bakinu en það þýðir víst lítið að kvarta yfir slíku smotteríi.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Sterarnir eru víst ekkert grín og um að gera að nýta sér það sem í boði er til að hvílast. Hvíldin er mikilvægari en maður vill vera láta. Duglega kona, gangi þér sem best á morgun og ég vona svo sannarlega að bakverkirnir fari að láta sig hverfa.
knús í hús
Katrín, 6.1.2012 kl. 11:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.