4.1.2012 | 00:03
Dagur 49 - þriðjudagur
Komugjöldin á lansann höfðu hækkað um áramótin um einhver lifandis býsn og vænti ég þess að það sé sérstök nýársgjöf frá Steingrími fyrrverandi fjármálaráðherra til vesalinganna í landinu sem þurfa á læknisaðstoð að halda. Ég get nú svosem huggað mig við það að brennivínið hefur hækkað margfalt og sígarettur líka en þar sem ég er hætt þvílíkum ósóma vegur það upp á móti háum lækniskostnaði hins íslenska helferðarkerfis. Verra með helv. díselolíuna sem er orðin jafnokurdýr og geimsteinar og gull eða því sem næst en það þýðir víst lítið að nöldra um þetta, það hlustar hvort eð er enginn.
Mótefnið í skrokknum sem þessar óæskilegu frumur framleiða er nánast horfið en í eðlilegum manni er það um 2% en hjá mér er það komið í 0,86% sem er nú bara vel af sér vikið. Það verður byrjað þann 20. janúar að safna stofnfrumunum og það er smá svona vesen eða þannig. Stór leggur verður þræddur í hálsinn á mér og í slagæð, væntanlega, því það þarf að vera svo mikið rennsli á blóðinu en 15 lítrar þurfa að fara úr mér og aftur í æðakerfið á ný þegar nýjum og fínum stofnfrumum er safnað. Öllu mínu blóði er þrídælt í þessa sérstöku skilvindu. Þetta mun taka sirka sex tíma í hvert sinn og með mér verða hjúkrunarfræðingur og einhverjir frá blóðbankanum skildist mér og svo bara hinir og þessir. Þetta þarf að endurtaka kannski tvisvar eða þrisvar og ég verð svo heppin að fá að hafa þennan legg í hálsinum á meðan þetta ástand varir og þið getið ímyndað ykkur hvort það sé ekki mikið tilhlökkunarefni. Það er þó örugglega margt verra en það og óþarfi að mála skrattann á vegginn hvað það varðar. Versta við þetta allt er að ég fæ ekki að fara á klósettið meðan á þessu stendur heldur ætla þær sko hjúkkurnar að koma færandi hendi með bekken ef mér verður mál, en þeim verður sko ekki skotaskuld úr því, ef ég get ekki pissað í klósett eins og manneskja þá pissa ég bara ekkert og hana nú.
Ég mun því bara eiga viku frí eftir þessa lyfjameðferð en ekki 10 daga en ég ætla samt heim, annað kemur ekki til greina.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Frábærar fréttir Ragna og mikið verður nú gott fyrir þig að komast heim þó í fáa daga sé. Kveðjur frá Ísó:)
Katrín, 4.1.2012 kl. 00:16
Gleðilegt nýtt ár Ragna og vertu Velkomin heim.
Rósa Sigr.Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 4.1.2012 kl. 07:26
Gleðilegt ár. Stjórnvöld eru glögg á matarholurnar !
Gangi þér ofsalega vel. ( alveg sammála þér með bekkenið)
Ragnheiður , 4.1.2012 kl. 11:51
vá, læknavísindin eru mögnuð, taka bara úr mann allt blóðið, hreinsa og sprauta því svo aftur í mann! Og þú ert ekki síður mögnuð kæra Ragna, ótrúlegur styrkur sem þú hefur sýnt í þessum veikindum og ég veit að þú gerir það áfram:) Megi nýtt ár færa þær góða heilsu á ný!
kv Harpa
Harpa Obba (IP-tala skráð) 4.1.2012 kl. 12:20
færa þÉr....
Harpa Obba (IP-tala skráð) 4.1.2012 kl. 12:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.