Gleðilega rest

Vertinum skilst að það sé víst fyrir margt löngu kominn tími á blogg því frásagnir af sjúkrasögu títtnefndrar hefur legið í dvala undanfarið og einn og annar verið að kvarta undan tíðindalitlum æsifrásögnum af hægðartregðu og öðrum óáran. Þetta bloggleysi er auðvitað leti um að kenna fyrst og fremst og engu öðru eða því sem næst. Konfektát, sjónvarpsgláp og prjónaskapur hefur þó þurft sinn tíma og smá lúrar inn á milli til að jafna þrótt og þrek sem er stundum er minna en meira. Ég get vaknað hin hressasta og rokið upp í morgunmat og látið eins og ég sé alheilbrigð og svo þarf ég að leggja mig í framhaldinu eins og hver annar kramaraumingi en það er bara eins og gengur.

Ég get sofið allar nætur eins og þyrnirós, hreyfi mig ekki jafnmikið og áður á nóttunni og ligg eins og skata í sömu stellingunni þar til ég vakna til að snúa mér við og það gengur alveg átakalaust fyrir sig. Hér áður fyrr var ég á stöðugri hreyfingu allar nætur og oftar en ekki var náttkjóllinn svo umsnúinn utan um skrokkinn þegar ég vaknaði að ég náði varla andanum og það var meiriháttar mál að greiða úr náttkjólaflækjunni en nú hefst þetta með hægðinni.

Ég tók upp á því að fá kvef en hér fyrr "sönnan" eru bara allir með kvef svo það væri hinsegin ef ég gripi það ekki glóðvolgt en það virðist þó ætla að vera til friðs enda engin ástæða til að ætla annars. Ég hristi það af mér eins og allt annað.

Hér er allt á kafi í snjó og allt hvítt og fallegt um að litast, bílar festast með reglulegu millibili í innkeyrslunni að blokkinni en það er auðvitað eins og við er að búast í höfuðborginni. Þetta virðist vera óskapleg snjóakista hérna núna amk en jólalegt og fallegt.

Andri fór norður í land til kærustunnar og Lilja fór vestur á firði til kærastans svo svo við erum bara fjögur heima núna. Loksins þegar við erum hér með krökkunum fyrir sunnan þá fara þau út og suður en það er bara fínt, það eiga allir að fá að gera það sem þeim langar til. Það eru mikil rólegheit svífandi yfir vötnunum á bænum enda engin ástæða til annars en að taka lífinu með ró.

Strax á nýju ári hefst lyfjameðferðin á ný og ég vonast til að komast í heim í næsta "fríi" en það er alveg kominn tími á það. Svo verður í framhaldinu farið að safna stofnfrumum í gríð og erg til að eiga í handraðanum þegar þar að kemur.

Annars þá fór ég í bíó í kvöld og sá eitt af mínum uppáhaldsævintýrum um Tinna og það var ekki leiðinlegt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Tinnamyndin er ofsalega skemmtileg, við fórum einmitt á hana öll stórfjölskyldan :)

Ragnheiður , 30.12.2011 kl. 06:21

2 Smámynd: Katrín

mikið er nú gott að heyra frá þér kona góð. vildi nú ekkert vera að kvabba vegna fréttaleysis en dagskammtur af húmor og skemmtilegum skrifum er orðinn mér jafnnauðsynlegur og Mogginn:) Vona að þú komist heim fljótlega mín kæra:)

Katrín, 30.12.2011 kl. 10:37

3 identicon

Tek undir með Kötu. Var aðeins óróleg yfir fréttaleysinu en gerði mér, réttilega, vonir um að um væri að kenna jólaönnum og/eða jólaleti sem á það til að heltaka sjúka sem heilbrigða um þetta leyti árs - en ekki því að þér hefði slegið niður. En ég er allaveg fegin að sjá að þetta var skýringin. Vona að þú eigir róleg og góð áramót og takir svo meðferðina með trukki á nýja árinu. Þú verður jú að vera komin í almennilegt stand áður en ömmuskottið mætir á svæðið:) Bestu kveðjur til þín og þinna.

Sólrún Geirsdóttir (IP-tala skráð) 30.12.2011 kl. 14:32

4 identicon

Sem betur fer vefst þér aldrei tunga um tönn hahahaha. Alltaf skemmtilegur penni og kemur manni til að hlægja. Knús í  hús.

Rósa Sigr.Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 30.12.2011 kl. 18:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband